Launakröfur 15 stéttarfélaga námu 1,4 milljörðum króna
06.10.2026
Fimmtán aðildarfélög Alþýðusambands Íslands (ASÍ) gerðu samtals 1.209 launakröfur fyrir hönd félagsfólks árið 2025. Heildarfjárhæð krafnanna nam um 1,4 milljörðum króna, samkvæmt nýrri skýrslu ASÍ, Brotastarfsemi á vinnumarkaði – Greining á launakröfum aðildarfélaga ASÍ 2025. Skýrslan er sú þriðja sem ASÍ gefur út um launaþjófnað en sambærilegar úttektir voru birtar árin 2019 og 2023.
Niðurstöður skýrslunnar sýna að kjarasamningsbrot og launaþjófnaður eru áfram alvarlegt og viðvarandi vandamál á íslenskum vinnumarkaði. Niðurstaðan mun vera sú sama og áður: Að ekkert bendir til þess að dregið hafi úr umfangi eða alvarleika brotanna.
Helstu niðurstöður
Af þeim 1.209 kröfum sem gerðar voru á árinu voru 863 almennar launakröfur fyrir samtals 729 milljónir króna. Þá voru gerðar 346 kröfur vegna gjaldþrota, sem námu samtals 674 milljónir króna.
Meðalfjárhæð almennrar launakröfu var um 845 þúsund krónur en tæplega 1,9 milljónir króna í gjaldþrotamálum.
Rúmur helmingur almennra launakrafna var gerður fyrir hönd erlendra ríkisborgara, þótt þeir séu aðeins tæplega fjórðungur launafólks á íslenskum vinnumarkaði. Í gjaldþrotamálum var hlutfall erlendra ríkisborgara um 60%.
Ungt launafólk var einnig áberandi í niðurstöðunum. Alls vörðuðu 56% krafnanna fólk yngra en 35 ára, en sá aldurshópur er um 40% vinnumarkaðarins.
Algengast var að kröfurnar vörðuðu vangreidd laun, meðal annars þegar greitt var undir kauptaxta eða laun ranglega reiknuð, og greiðslur í tengslum við uppsagnir.
Brot sem aldrei koma upp á yfirborðið
Vinnustaðaeftirlit ASÍ og stéttarfélaganna fór í 1.331 eftirlitsheimsókn á árinu og ræddi við 3.238 einstaklinga. Erlendir ríkisborgarar voru 62% þeirra sem rætt var við.
Tekið skal fram að skýrslan tekur aðeins til mála sem leiddu til formlegrar launakröfu. Ætla má hins vegar að mun fleiri brot komi aldrei til kasta stéttarfélaganna, meðal annars vegna þess að launafólk þekkir ekki réttindi sín eða óttast afleiðingar þess að gera athugasemdir við starfskjör sín.
Finnbjörn A. Hermannsson, forseti ASÍ, segir í ávarpi sínu í skýrslunni að óprúttnir atvinnurekendur geti enn haft fjárhagslegan ávinning af því að halda eftir launum starfsfólks.
„Þar liggur stærsta gatið í regluverkinu sem nauðsyn er að byrgja fyrir. Viðurlög gegn launaþjófnaði eru löngu tímabær,“ segir Finnbjörn.
Nánar um skýrsluna má lesa hér.