Fara á efnissvæði

Loftbrú verði ekki skert

Miðstjórn Alþýðusambands Íslands (ASÍ) skorar á stjórnvöld að draga þegar í stað til baka fyrirhugaðar breytingar á Loftbrú og hefja raunverulegt samráð við íbúa, sveitarfélög og hagsmunasamtök á landsbyggðinni um fyrirkomulag Loftbrúar til framtíðar.

Í frétt á vef ASÍ segir að Loftbrú hafi verið komið á til að jafna aðstöðumun eftir búsetu og bæta aðgengi íbúa landsbyggðarinnar að miðlægri þjónustu á höfuðborgarsvæðinu. Innanlandsflug er víða um land mikilvægur hluti almenningssamgangna og forsenda aðgengis að heilbrigðisþjónustu, námi og atvinnu, auk þess sem það auðveldar fólki að viðhalda tengslum við fjölskyldu og vini.

Í ályktuninni kemur fram að með fyrirhugaðri breytingu úr hlutfallslegri niðurgreiðslu í fasta krónutölu myndu farþegar sjálfir bera stærri hluta kostnaðarins þegar flugfargjöld hækka. Breytingin myndi bitna sérstaklega á þeim sem þurfa að ferðast með skömmum fyrirvara, þegar fargjöld eru yfirleitt hæst.

Boðuð hækkun fasta styrksins leysir samt ekki vandann. Þar sem styrkurinn hækkar ekki í takt við flugfargjaldið þurfa farþegar að greiða sífellt stærri hluta þess sjálfir eftir því sem fargjaldið hækkar. Þeir sem greiða hæstu fargjöldin bera því mestan viðbótarkostnað.

Miðstjórn ASÍ tekur undir þá gagnrýni sem sveitarfélög og landshlutasamtök hafa gert við þessar breytingar stjórnvalda og minnir á að Loftbrú sé meðal annars viðbragð við því að þjónusta hafi verið færð úr heimabyggðum. Fyrirsjáanleiki í ríkisfjármálum verður ekki tryggður með því að auka á óvissu launafólks og fjölskyldna þess um ferðakostnað og aðgengi að nauðsynlegri þjónustu.

Í ályktuninni er jafnframt bent á þann möguleika að stjórnvöld semji við flugrekendur um kaup á tilteknum fjölda farmiða á föstu verði. Með því mætti auka fyrirsjáanleika, bæta aðgengi landsmanna að samgöngum og nýta almannafé betur.

Miðstjórn ASÍ hvetur því stjórnvöld til að falla frá umræddu breytingum og hefja þegar í stað vinnu að fyrirkomulagi sem tryggir landsmönnum viðráðanlegt aðgengi að samgöngum og miðlægri þjónustu.