Fara á efnissvæði

Mikill verðmunur á bökunarvörum

Verðmunur á algengum bökunarvörum nemur allt að 66% milli verslana samkvæmt nýrri könnun verðlagseftirlits ASÍ. Verð á sykri, hveiti og nokkrum súkkulaðivörum hefur lækkað milli ára en egg og mjólkurvörur hafa hækkað frá nóvember 2024.

Verðþróun bökunarvara hefur verið misjöfn. Verð á nokkrum vörum frá Nóa Síríus hefur lækkað um 11–13% síðastliðið ár, en er þó enn 9–21% hærra en í nóvember 2024. Lindu suðusúkkulaði hefur hækkað um 30% á sama tveggja ára tímabili.

Meðalverð á hveiti hefur lítið breyst en sykur hefur lækkað annað árið í röð. DanSukker-sykur hefur lækkað um 25% á tveimur árum og Euroshopper-strásykur um 18%. Egg hafa hins vegar hækkað um 12–14% og rjómi, smjör og mjólk um 10–23% frá nóvember 2024.

Mikill verðmunur mælist jafnframt milli verslana. Til dæmis kostuðu Nóa súkkulaðiperlur  476 krónur í Fjarðarkaupum en 789 krónur í Krambúðinni. Munurinn nam 313 krónum, eða tæpum 66%. Kötlu púðursykur var tæplega 60% dýrari í Krambúðinni en í Prís og verðmunur á Nesbú hamingjueggjum var um 42%.

Engin ein verslun var með lægsta verðið á öllum vörunum. Prís var þó oftast ódýrust, eða með lægsta verð á níu af þeim sextán vörum sem fengust í fleiri en einni verslun. Bónus var með lægsta verð á fjórum vörum, Krónan á tveimur og Fjarðarkaup á einni.

Einnig getur munað töluverðu á sambærilegum vörum innan sömu verslunar. Með því að bera saman vörumerki og kílóverð geta neytendur sparað allt að 31%. Niðurstöður könnunarinnar sýna því að það getur borgað sig að bera saman verð, bæði milli verslana og innan þeirra, áður en bökunarvörurnar eru keyptar.