Fara á efnissvæði

Minnsta launaskriðið hjá verkafólki

Haustskýrsla Kjaratölfræðinefndar var kynnt í húsakynnum ríkissáttasemjara í morgun. Nefndin er samstarfsvettvangur ríkisins, sveitarfélaga og heildarsamtaka vinnumarkaðarins. Hlutverk hennar er að taka saman og miðla upplýsingum um laun og efnahagsmál sem nýtast við undirbúning og eftirfylgni kjarasamninga.

Í skýrslunni er meðal annars fjallað um þróun launa á almennum og opinberum vinnumarkaði í yfirstandandi kjarasamningslotu fram til júní 2026 og launastigið í maí sama ár. Einnig er fjallað um samsetningu og dreifingu launa, þá kjarasamninga sem gerðir hafa verið í lotunni, stöðuna á íslenskum vinnumarkaði, þróun efnahagsmála og kaupmátt launa.

Minna launaskrið hjá verkafólki

Fram kemur í skýrslunni að grunntímakaup á vinnumarkaðinum hækkaði að meðaltali um 18,7% frá febrúar 2024 til júní 2026. Verðlag hækkaði um 12,2% á sama tíma og jókst kaupmáttur grunntímakaups því um 5,8%.

Grunntímakaup verkafólks innan ASÍ hækkaði um 20,6% á tímabilinu, meira en hjá öðrum hópum innan ASÍ á almennum vinnumarkaði. Hækkunin var 21,6% hjá konum og 20,2% hjá körlum. Krónutöluhækkanir kjarasamninganna skiluðu þannig hlutfallslega mestri hækkun til þeirra sem voru með lægstu launin.

Með launaskriði er átt við launahækkanir umfram þær hækkanir sem leiða af kjarasamningum. Verkafólk naut minni slíkra hækkana en aðrir hópar innan ASÍ á almennum markaði. Árlegt meðaltal launaskriðs og óvissu í matinu var 1,7% hjá verkafólki, samanborið við 2,3% hjá verslunarfólki og 2,5% hjá iðn- og tæknifólki. Nefndin tekur fram að greiningin sé frummat og niðurstöðurnar háðar óvissu.