Fara á efnissvæði

Norrænt málþing um kjör starfsfólks í ferðaþjónustu

Í gær lauk tveggja daga málþingi NU-HRCT í Reykjavík. NU-HRCT er norrænn samstarfsvettvangur stéttarfélaga starfsfólks á hótelum, kaffihúsum, skyndibitastöðum og veitingahúsum, auk annarra starfa í ferðaþjónustu. Bæði SGS og Matvís eiga aðild að samtökunum og komu að undirbúningi og skipulagningu málþingsins.

Markmið málþingsins var að auka skilning á kjarasamningum í hótel- og veitingagreinum á Norðurlöndunum, greina hvað er líkt og ólíkt milli landa og miðla reynslu milli þátttakenda.

Meðal umræðuefna voru verklag við gerð kjarasamninga, launastig og launaþróun í greininni, vinnutími og fyrirkomulag hans, hlutastörf og helstu áskoranir sem blasa við í hverju landi.

Málþingið sóttu 20 fulltrúar frá öllum Norðurlöndunum. Fulltrúar SGS voru sjö:

  • Finnbogi Sveinbjörnsson, formaður VerkVest
  • Heiðrún Hallgrímsdóttir, formaður Verkalýðsfélags Snæfellinga
  • Aðalsteinn Árni Baldursson, formaður Framsýnar
  • Silja Eyrún Steingrímsdóttir, formaður Stéttarfélags Vesturlands
  • Guðbjörg Kristmundsdóttir, formaður Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur og nágrennis
  • Björg Bjarnadóttir, framkvæmdastjóri SGS
  • Arinbjörn Rögnvaldsson, verkefnastjóri SGS

Að málþinginu loknu fór hópurinn í skoðunarferð um Grindavík til að skoða ummerki eldsumbrotanna. Hörður Guðbrandsson, formaður Verkalýðsfélags Grindavíkur, tók á móti hópnum og fór ásamt leiðsögumanni yfir það sem gerst hefur í Grindavík.

Það er ávallt gagnlegt að ræða sameiginleg viðfangsefni við félaga okkar á Norðurlöndunum, bera saman reynslu og læra hvert af öðru. Málþingið gaf okkur hjá SGS ýmsar gagnlegar hugmyndir og áherslur sem við tökum með okkur inn í áframhaldandi starf.

Hér að neðan má sjá myndir frá málþinginu og skoðunarferð þátttakenda um Grindavík.

Málþing(2)
Málþing(1) (1)
Málþing(3)
Hópmynd(1)
Heimsókn Til Grindavíkur 2