Fara á efnissvæði

Samkomulag við SA samþykkt

Breiðfylkingin, sem samanstendur af Starfsgreinasambandi Íslands, Eflingu, Samiðn og Byggiðn, undirritaði seint í gærkvöldi samkomulag við Samtök atvinnulífsins um viðbrögð við forsendubresti kjarasamninga, með fyrirvara um samþykki aðildarfélaganna. Á fundi formanna aðildarfélaga SGS, sem lauk nú fyrir skömmu, var samkomulagið samþykkt.

Samkomulagið tryggir áframhaldandi gildi kjarasamninganna og að allar umsamdar launahækkanir sem eftir eru á samningstímanum skili sér að fullu til launafólks. Þar vegur þyngst 5% hækkun á launatöxtum um næstu áramót, sem mun leiða til þess að lægstu launataxtar fara í fyrsta sinn yfir 500 þúsund krónur á mánuði.

Með samkomulaginu hefur Breiðfylkingin sýnt ábyrgð og yfirvegun með því að segja kjarasamningunum ekki upp og afstýra þannig átökum á vinnumarkaði þar sem ríkir hátt atvinnuleysi. Ákvörðunin byggist þó á því að stjórnvöld, sveitarfélög og atvinnulíf axli sína ábyrgð með launafólki og standi við þau loforð um að halda aftur af gjaldskrár- og verðhækkunum.

Stöðugleikasamningarnir voru undirritaðir árið 2024 sem fólu í sér hófsamar launahækkanir með það að markmiði að ná niður verðbólgu og vöxtum og verja kaupmátt launafólks. Verðbólga í ágúst mældist hins vegar yfir þeim mörkum sem forsenduákvæði samninganna gerðu ráð fyrir og því var Breiðfylkingunni heimilt að segja samningunum upp.

Í stað þess að segja upp kjarasamningum var ákveðið að tryggja áframhaldandi gildi samninganna og jafnframt kalla ríki, sveitarfélög og fyrirtæki til ábyrgðar. Samkomulagið felur meðal annars í sér að samningstíminn styttist um einn mánuð, en sú breyting skerðir ekki þær launahækkanir sem þegar var búið að semja um. 

Sameiginleg ábyrgð á verðbólgunni

Í sameiginlegri yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar, ASÍ, SA og Sambands íslenskra sveitarfélaga kemur fram að ríkið muni ekki hækka krónutölugjöld eða gjaldskrár ríkisstofnana sem hafa bein áhrif á vísitölu neysluverðs um meira en 2,5% árið 2027. Kílómetragjald er þar undanskilið vegna breytinga á fyrirkomulagi gjaldtöku ökutækja.

Fyrirtæki í eigu ríkisins verða jafnframt hvött til að halda gjaldskrárhækkunum innan sömu marka. Þá mun Samband íslenskra sveitarfélaga einnig hvetja sveitarfélögin til að hækka gjaldskrár sínar ekki umfram 2,5% og þegar hafa 33 sveitarfélög svarað því kalli sem lesa má nánar um hér.  Þá munu Samtök atvinnulífsins einnig beina því til aðildarfyrirtækja sinna að halda aftur af verðhækkunum.

Réttarbætur og stuðningur við heimilin

Samhliða samkomulaginu hafa stjórnvöld boðað aðgerðir sem eiga að styrkja stöðu launafólks. Á næstu misserum verða lögð fram frumvörp sem fela í sér miklar réttarbætur fyrir launafólk. Þar má helst nefna viðurlög vegna vangreiddra lágmarkskjara og um að krafa launafólks um umsamin lágmarkskjör falli ekki niður vegna tómlætis.

Meðal annarra aðgerða eru hækkun barnabóta og skerðingarmarka, leigubremsa sem felur í sér bann við mánaðarlegri vísitölutengingu húsaleigu, aukin uppbygging hagkvæms leiguhúsnæðis fyrir eigna- og tekjulága leigjendur og undirbúningur keðjuábyrgðar í stærri verklegum framkvæmdum.

Ef ársverðbólga mælist yfir 4% í lok október 2027 verða greiddar sérstakar einskiptisvaxtabætur til skuldsettra heimila í upphafi árs 2028. Fari verðbólgan yfir 5% verður fjárhæðin hærri.

Staðan metin mánaðarlega

Frá og með nóvember verða haldnir mánaðarlegir fundir samningsaðila þar sem verðbólguþróunin verður metin og fylgst með því hvort allir standi við sinn hluta samkomulagsins.

SGS hefur sýnt ábyrgð með því að tryggja áframhaldandi kjarasamninga, umsamin launakjör og mikilvægar réttarbætur. Nú reynir á að stjórnvöld, sveitarfélög og atvinnulíf sýni sömu ábyrgð í verki.