Fara á efnissvæði

SGS gagnrýnir skatta- og gjaldahækkanir stjórnvalda

Starfsgreinasamband Íslands hefur skilað umsögn til efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis um frumvarp til breytinga á ýmsum lögum vegna fjárlaga fyrir árið 2027. SGS gerir alvarlegar athugasemdir við þær skatta- og gjaldahækkanir sem frumvarpið boðar og getur ekki stutt það óbreytt.

SGS bendir á að launafólk hafi lagt sitt af mörkum til stöðugleika með hóflegum langtímakjarasamningum. Forsenda þeirra hafi verið að allir tækju þátt í að halda aftur af verðlagi og stuðla þannig að lægri verðbólgu og vöxtum. Að mati sambandsins ganga fyrirhugaðar hækkanir stjórnvalda gegn þeirri viðleitni.

Hækkanir langt umfram 2,5%

SGS hefur kallað eftir sameiginlegu átaki þar sem verð- og gjaldskrárhækkanir verði ekki umfram 2,5% út gildistíma kjarasamninga. Í frumvarpinu er hins vegar gert ráð fyrir að fjölmargir skattar og gjöld hækki um 5,2% og kílómetragjald um nær 16%.

Sambandið bendir sérstaklega á áhrif hækkunar kílómetragjalds á landsbyggðinni. Þar eru vegalengdir til vinnu og þjónustu víða langar og almenningssamgöngur ekki raunhæfur kostur. Hækkunin getur auk þess skilað sér í auknum flutningskostnaði og hærra vöruverði.

Í frumvarpinu sjálfu er áætlað að ráðstafanirnar hækki vísitölu neysluverðs um 0,32%. SGS telur því að ríkið sé sjálft að auka verðbólgu á sama tíma og það krefst hófsemi af öðrum.

Aukin skattbyrði launafólks

SGS gagnrýnir einnig fyrirhugaðar breytingar á uppfærslu persónuafsláttar og skattþrepa. Afleiðingin verður sú að launafólk greiðir hærri skatt en ella þótt skatthlutföllin sjálf breytist ekki. Samkvæmt mati stjórnvalda eykst skattbyrði einstaklinga um 3,1 milljarð króna árið 2027 vegna breytinganna.

SGS hafnar því að auknar tekjur ríkissjóðs séu sóttar með þessum hætti til launafólks. Hærri skattbyrði þýðir færri krónur í vasa launafólks til að standa undir síhækkandi útgjöldum heimilanna.

Sambandið gagnrýnir jafnframt skort á samráði við fulltrúa launafólks og minnir á að ábyrgðin á því að ná niður verðbólgu og vöxtum verði að vera sameiginleg.

Það mun aldrei ganga að kalla eftir ábyrgð launafólks, sveitarfélaga og atvinnulífs en ríkið sjálft hækki skatta og gjöld langt umfram þau mörk sem aðrir eru beðnir um að virða.

Lesa má umsögn SGS í heild sinni hér.