Fara á efnissvæði

Þing AN skorar á stjórnvöld

Sjötíu fulltrúar frá níu af ellefu stéttarfélögum á Norðurlandi sátu 39. þing Alþýðusambands Norðurlands (AN), sem fór fram á Illugastöðum í Fnjóskadal dagana 24. og 25. september sl. Á þinginu var samþykkt einróma ályktun um byggða- og atvinnumál þar sem skorað er á stjórnvöld að standa vörð um landsbyggðina og tryggja að íbúar hennar njóti sömu lífsgæða og tækifæra og íbúar höfuðborgarsvæðisins.

Í ályktuninni er bent á að dreifðar byggðir landsins skapi stóran hluta gjaldeyristekna þjóðarinnar með framleiðslu og útflutningi. Þingið krefst þess að eðlilegur hluti þeirra verðmæta sem verða til á landsbyggðinni skili sér aftur heim í hérað og telur óásættanlegt að byggðarlögin veikist á sama tíma og þar fer fram mikil verðmætasköpun.

Þingið lagði meðal annars áherslu á að jafna aðgengi að heilbrigðisþjónustu óháð búsetu og efnahag. Styrkja þurfi heilbrigðisstofnanir á landsbyggðinni og auka stuðning vegna ferða- og dvalarkostnaðar sjúklinga og aðstandenda sem þurfa að sækja þjónustu fjarri heimabyggð.

Einnig var lögð áhersla á viðhald og uppbyggingu vega, flugvalla og annarra samgöngumannvirkja á landsbyggðinni. Þingið hafnaði sérstaklega öllum áformum um sölu flugstöðvarinnar á Húsavíkurflugvelli til að bjarga fjárlagagatinu. Þess í stað verði staðið við fjárveitingar til venjulegs viðhalds flugvallarins sem skorið hefur verið markvisst niður á undanförnum árum.

Þá var kallað eftir auknu fjármagni til félagslegrar þjónustu og atvinnuuppbyggingar, jöfnu aðgengi að menntun, opinberri þjónustu, fjarskiptum og orku á viðráðanlegu verði. Þá vill þingið að innleiddir verði hvatar til að fyrirtæki staðsetji starfsemi, nýsköpun og framleiðslu á landsbyggðinni og að ríkisstofnunum verði fjölgað utan höfuðborgarsvæðisins.

Þá minnir þingið á að án sterkrar landsbyggðar veikist bæði efnahagslegt og menningarlegt sjálfstæði þjóðarinnar. Stjórnvöld verði því að tryggja að arðurinn af auðlindum og útflutningi nýtist öllum landsmönnum, ekki síst þeim samfélögum sem skapa verðmætin á landsbyggðinni.

Þingið varar jafnframt við því að almennar skattkerfisbreytingar og álögur bitni ekki meira á íbúum landsbyggðarinnar umfram þá sem búa á höfuðborgarsvæðinu. Þá kallaði þingið eftir heildstæðri byggðastefnu sem endurspeglaði þessar áherslur.

Á þinginu var Trausti Jörundarson, formaður Sjómannafélags Eyjafjarðar, kjörinn nýr formaður AN til næstu tveggja ára.

Nánar má lesa um 39. þing AN hér.