Útvíkkaður formannafundur í Austur-Skaftafellssýslu
03.06.2026
Í síðustu viku, dagana 27.–28. maí, fór fram formannafundur Starfsgreinasambands Íslands. Fundurinn að þessu sinni var haldinn í Suðursveit í Austur-Skaftafellssýslu. Um var að ræða útvíkkaðan fund, en til slíkra formannafunda eru formenn aðildarfélaga SGS boðaðir auk eins fulltrúa til viðbótar frá hverju félagi.
Á fundinum fór m.a. Róbert Farestveit, hagfræðingur ASÍ, yfir stöðu og horfur efnahagsmála og svaraði fyrirspurnum frá fundarmönnum. Þá fengu fundarmenn kynningu á sveitarfélaginu frá Sigurjóni Andréssyni, bæjarstjóra Hornafjarðar, svo fátt eitt sé nefnt. Góðar umræður sköpuðust á meðal fundarmanna um núverandi stöðu verkafólks og ljóst þykir að mörg krefjandi verkefni eru fram undan innan hreyfingarinnar.