Fara á efnissvæði

Verkalýðsfélag Þórshafnar fagnar 100 ára afmæli

Í dag, 16. júlí, fagnar Verkalýðsfélag Þórshafnar 100 ára afmæli sínu. Aldarafmæli félagsins hefur verður fagnað á ýmsan hátt og í dag, á sjálfan afmælisdaginn, býður félagið upp á fjölskyldusýningar í íþróttahúsinu kl. 14:00 og 16:00, veitingar í Holtinu kl. 18:30 og tónleika með Hundi í óskilum kl. 21:00. Nánari dagskrá má sjá hér.

Starfsgreinasamband Íslands óskar félagsmönnum, stjórn og starfsfólki innilega til hamingju með þennan merka áfanga. Megi félagið halda áfram að vaxa og dafna um ókomin ár.

Verkalýðsfélag Þórshafnar var stofnað 16. júlí 1926 að frumkvæði Guðmundar Einarssonar í Garði á Þórshöfn. Með honum að stofnun félagsins komu Halldór Guðbrandsson, Egill Halldórsson, Zóphónias Pétursson, Helgi Þorsteinsson, Tryggvi Sigfússon og Aðalsteinn, sonur Guðmundar. Guðmundur varð fyrsti formaður félagsins.

Frá upphafi hefur félagið barist fyrir bættum kjörum og réttindum launafólks, en jafnframt tekið virkan þátt í uppbyggingu samfélagsins. Félagið átti meðal annars frumkvæði að því að koma á vatnsveitu í þorpinu, lagði fé til félagsheimilisins, byggingar Sjúkrahússins á Akureyri og kirkjunnar á Þórshöfn og styrkti ýmis samfélagsleg verkefni.

Félagið gekk í Alþýðusamband Íslands árið 1938 og síðar í Starfsgreinasamband Íslands. Félagssvæðið hefur stækkað í gegnum árin og nær nú yfir svæði fyrrum Langanesbyggðar og Svalbarðshrepps. Árið 2001 var gerður samstarfssamningur við Framsýn á Húsavík og hefur það samstarf reynst félaginu afar mikilvægt.

Árið 1960 var stofnuð sjómannadeild og síðar voru stofnaðar verslunar- og skrifstofudeild og iðnaðardeild. Félagið hefur einnig byggt upp öflugt starf í þágu félagsmanna, meðal annars með sjúkrasjóði, fræðslustyrkjum og orlofshúsum í Kjarnaskógi við Akureyri.

Fundargerðir félagsins eru varðveittar frá árinu 1945, en eldri gögn glötuðust í eldi.

Núverandi stjórn félagsins skipa Aneta Potrykus formaður, Svala Sævarsdóttir, Jódís Ósk Jónsdóttir, Sigríður Jónsdóttir og Ari Sigfús Úlfsson.

Vlf Þórshafnar 100 Landscape