Vetrarfrí vaktavinnufólks
28.10.2026
Starfsgreinasamband Íslands vill vekja athygli félagsmanna sem starfa í vaktavinnu á rétti þeirra til vetrarfrís samkvæmt greiðasölusamningi SGS og Samtaka atvinnulífsins. Samningurinn nær meðal annars til starfsfólks á veitinga-, gisti-, þjónustu- og á greiðasölustöðum.
Samkvæmt kjarasamningnum vinnur vaktavinnufólk sér inn allt að 12 vetrarfrídaga miðað við ársstarf vegna helgi- og tyllidaga sem falla á mánudaga til föstudaga.
Vetrarfrídagar skulu veittir á tímabilinu 1. október til 1. maí og skal atvinnurekandi tilkynna töku þeirra með að minnsta kosti mánaðar fyrirvara. Meginreglan er að starfsfólk taki launað vetrarfrí, en með samkomulagi starfsmanns og atvinnurekanda má greiða dagana út í stað frítöku. Greiðslan miðast við átta dagvinnustundir fyrir hvern dag miðað við fullt starf, en hlutastarfsfólk fær greitt í samræmi við starfshlutfall. Áunnið vetrarfrí afleysingafólks skal gert upp við starfslok.
Félagsmenn eru hvattir til að kynna sér ákvæði 3. kafla greiðasölusamningsins um vaktavinnu og hafa samband við stéttarfélag sitt ef þeir telja að réttur þeirra til vetrarfrís hafi ekki verið virtur.