Við erum ekki á matseðlinum!
23.11.2026
Starfsgreinasambandið vill af gefnu tilefni vekja athygli á árlegri vitundarvakningu norrænna samtaka starfsfólks í hótel- og veitingagreinum gegn áreitni og fyrir auknu öryggi starfsfólks undir yfirskriftinni „Við erum ekki á matseðlinum!“. Nú þegar tími jólahlaðborða og ýmissa veisluhalda er genginn í garð er rétt að minna á mikilvægi þess að sýna starfsfólki í þjónustugreinum þá virðingu og tillitssemi sem það á skilið.
Kynferðisleg áreitni er því miður allt of algeng innan hótel- og veitingageirans. Slík hegðun er með öllu ólíðandi og enginn á að þurfa að þola hana. Rannsóknir sýna að helmingur kvenna sem starfa í þjónustugreinum verður fyrir áreitni á vinnustað af hálfu viðskiptavina, samstarfsfólks, birgja eða yfirmanna. Um fjórðungur karla verður fyrir slíkri áreitni.
Að koma í veg fyrir áreitni á vinnustöðum er öryggismál og ber að meðhöndla það eins og önnur vinnuverndarmál. Það er fyrst og fremst á ábyrgð atvinnurekenda að tryggja starfsfólki öruggt vinnuumhverfi en við þurfum jafnframt öll að bregðast við ef við verðum vitni að áreitni.
Atvinnurekendum ber skylda til að gera áætlun um öryggi og heilbrigði á vinnustað og bregðast eins fljótt og auðið er við kvörtunum um áreitni eða ofbeldi. Starfsfólk sem telur sig hafa orðið fyrir kynferðislegri eða kynbundinni áreitni eða ofbeldi, eða hefur rökstuddan grun eða vitneskju um slíka hegðun á vinnustað, skal upplýsa atvinnurekanda og/eða vinnuverndarfulltrúa. Þá er ávallt hægt að leita ráða og stuðnings hjá stéttarfélaginu.