Fara á efnissvæði

Mánaðarlegur fræðslufundur – ítarleg umfjöllun um vinnuslys félagsmanna

Á fræðslufundi SGS í maí var farið yfir helstu atriði sem hafa þarf í huga þegar félagsmaður verður fyrir vinnuslysi. Nú mun Anna Lilja Sigurðardóttir, lögfræðingur hjá ASÍ, taka efnið ítarlegar fyrir.

Anna Lilja fer meðal annars yfir hvað telst vinnuslys, tilkynningar, bótarétt og réttindi félagsmanna samkvæmt kjarasamningum, tryggingum og sjúkrasjóðum. Einnig verður fjallað um nýlegar lagabreytingar sem hafa veruleg áhrif á réttindi vegna vinnuslysa.

Fundurinn fer fram á Teams miðvikudaginn 18. nóvember kl. 9.00.