Karen Ósk Nilsen Björnsdóttir, lögfræðingur hjá ASÍ, mun fjalla um helstu praktísku atriði sem hafa ber í huga þegar félagsmaður verður fyrir vinnuslysi. Meðal annars verður farið yfir fyrstu viðbrögð þegar félagsmaður leitar til síns félags, hvaða reglur gilda samkvæmt kjarasamningum og önnur tengd atriði.
Fræðslufundurinn fer fram miðvikudaginn 13. maí kl. 09:00 á TEAMS.