16. nóvember 2018
Landverðir athugið!
Þeir landverðir sem starfað hafa hjá Vatnajökulsþjóðgarði - á vinnustöðum í óbyggðum - frá árinu 2011 og ekki verið í sambandi við sitt stéttarfélag, Landvarðafélag Íslands eða Starfsgreinasamband Íslands, vegna greiðslu fjarvistaruppbótar, eru beðnir um að gera það sem fyrst.
Eftir að greiðsla fjarvistaruppbótar var viðurkennd með dómi Héraðsdóms Austurlands og staðfest í Hæstarétti gerðu fé…
14. nóvember 2018
Konur taka af skarið á Akureyri
Það var líf og fjör sl. laugardag í sal Einingar-iðju þar sem konur á Norðurlandi hittust til skrafs og ráðagerða. Tilefnið var námskeiðið „Konur taka af skarið!“ sem AkureyrarAkademían, Jafnréttisstofa, Starfsgreinasambandið og JCI Sproti standa fyrir. Verkefnið fékk styrk úr Jafnréttissjóði Íslands og er markmið þess að hvetja konur til þátttöku og áhrifa innan verkalýðshreyfingarinnar.
Viðamik…
12. nóvember 2018
Desemberuppbót 2018
Samkvæmt kjarasamningum ber atvinnurekendum að greiða starfsfólki sínu desemberuppbót í byrjun desember ár hvert. Uppbótin er háð ákveðnum skilyrðum sem varða t.a.m. starfstíma og starfshlutfall á yfirstandandi ári. Desemberuppbót skal greiða í einu lagi og ofan á hana reiknast ekki orlof. Uppbótin er föst krónutala og tekur ekki hækkunum skv. öðrum ákvæðum kjarasamninga.
Upphæðir desemberuppbót…!--more-->
12. nóvember 2018
Hörður Guðbrandsson nýr formaður Verkalýðsfélags Grindavíkur
Hörður Guðbrandsson hefur tekið við formennsku Verkalýðsfélags Grindavíkur, en hann tekur við embættinu af Magnúsi Má Jakobssyni sem gegnt hefur formennsku í félaginu frá árinu 2012. Hörður er búfræðingur að mennt og hefur starfað við ýmsa verkamannavinnu í gegnum tíðina, m.a. sem bílstjóri, verkstjóri og sjómaður. Hörður var í bæjarstjórn Grindavíkur í 10 ár og forseti bæjarstjórnar megnið af þei…!--more-->