Kynferðisleg áreitni

Kynferðisleg áreitni er hvers kyns kynferðisleg hegðun sem er í óþökk þess sem fyrir henni verður og hefur þann tilgang eða þau áhrif að misbjóða virðingu viðkomandi, einkum þegar hegðunin leiðir til ógnandi, fjandsamlegra, niðurlægjandi, auðmýkjandi eða móðgandi aðstæðna. Hegðunin getur verið orðbundin, táknræn og/ eða líkamleg.

Árið 2017 gaf Starfsgreinasambandið út einblöðung fyrir starfsfólk stéttarfélaga og trúnaðarmenn um kynferðislega áreitni og viðbrögð við henni. Einblöðungurinn er hluti af fræðslustarfi sambandins gagnvart stéttarfélögum og trúnaðarmönnum og miðar að því að gera félög betur í stakk búin til að taka á þeim málum sem upp koma.

Gagnlegar upplýsingar

Einblöðungur um kynferðislega áreitni Einblöðungur um kynferðislega áreitni (enska) Aðgerðaráætlun SGS gegn einelti og kynbundnu ofbeldi Rannsókn á upplifun starfsfólks á kynferðislegri áreitni á vinnustað Bæklingur um kynbundna og kynferðislega áreitni á vinnustöðum
Var efnið hjálplegt?