6. þing Starfsgreinasambands Íslands

6. þing Starfsgreinasambands Íslands verður sett á Hótel Selfossi á morgun, 11. október, og mun standa yfir í tvo daga. Þingið hefur æðsta vald í málefnum sambandsins og þar eru lagðar línurnar í kjaramálum og starfsemi sambandsins til næstu tveggja ára. Á þingið í ár mæta alls 135 fulltrúar frá 19 aðildarfélögum sambandsins. Dagskrá þingsins verður með hefðbundnu sniði en í takt við nýja tíma þá verður þingið rafrænt, þ.e.a.s. engum pappír verður dreift heldur munu gögn þingsins verða aðgengileg á sérstökum þingvef. Þá munu kosningar þingsins sömuleiðis fara fram með rafrænum hætti. Nokkrar nefndir verða starfandi á þinginu og ber þar helst að nefna kjara- og atvinnunefnd, húsnæðis- og velferðarnefnd, laganefnd auk fjárhags- og starfsháttanefndar.

Dagskrá þingsins.

Miðvikudagur 11. október Kl. 10:00 Setning og ávörp gesta Þorsteinn Víglundsson, félags- og jafnréttismálaráðherra Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ Kl. 10:45 Kosning þingforseta og ritara, kynning á þingvef, álit kjörbréfanefndar, kosning nefndanefndar Kl. 11:00 Yfirlit yfir þróun og horfur í kjaramálum Henný Hinz, aðalhagfræðingur ASÍ Kl. 11:30 Skýrsla stjórnar og framkvæmdastjóra SGS 2015-2017 Ársreikningar sambandsins 2015 og 2016 Kl. 11:45 Matarhlé Kl. 13:00 Kynning á ályktunum, lagabreytingum, starfs- og fjárhagsáætlun Lagabreytingar, fyrri umræða Kl. 13:30 Formenn nefnda um sjúkrasjóð og félagsaðild kynna niðurstöður. Almennar umræður Kl. 15:00 Kaffihlé Kl. 15:30 Nefndanefnd kynnir niðurstöður sínar Nefndastörf (kjara- og atvinnunefnd, fjárhags- og starfsháttanefnd, húsnæðis- og velferðarnefnd, laganefnd og kjörnefnd) [hr toTop="false" /] Fimmtudagur 12. október 2017 Kl. 09:00 Lagabreytingar, síðari umræða og afgreiðsla Kl. 10:00 Almenn umræða Afgreiðsla ályktana frá nefndum Afgreiðsla starfs- og fjárhagsáætlunar Ákvörðun um skatthlutfall Kl. 12:30 Matarhlé Kl. 13:30 Afgreiðslu mála fram haldið Kl. 15:30 Kosning formanns SGS Kosning varaformanns SGS Kosning 5 aðalmanna í framkvæmdastjórn SGS Kosning 5 varamanna í framkvæmdastjórn SGS Kosning endurskoðenda og félagslegar skoðunarmanna reikninga Kosning fastanefnda (Laganefnd og Kjörnefnd) Kl. 17:00 Þingslit
[hr toTop="false" /] Starfsgreinasamband Íslands (SGS) er landssamband almenns og sérhæfðs verkafólks. SGS er stærsta landssamband innan ASÍ, en 19 verkalýðsfélög eiga aðild að sambandinu með um 50 þúsund félagsmenn. Aðildarfélög SGS eru þessi: Efling-stéttarfélag, Vlf. Akraness, Stéttarfélag Vesturlands, Vlf. Snæfellinga, Vlf. Vestfirðinga, Vlsfél. Bolungarvíkur, Stéttarfélagið Samstaða, Aldan stéttarfélag, Eining-Iðja, Framsýn stéttarfélag, Vlf. Þórshafnar, Afl-Starfsgreinafélag, Vlf. Suðurlands, Báran stéttarfélag, Drífandi stéttarfélag, Vfl. Grindavíkur, Vlsfél. Keflavíkur og nágrennis (VSFK), Vlsfél. Sandgerðis og Vlf. Hlíf.
  1. 4/16/2024 2:46:16 PM Nýjar reiknivélar
  2. 3/22/2024 2:49:34 PM Nýir kauptaxtar SGS og SA
  3. 3/20/2024 11:48:06 AM Kjarasamningur SGS og SA samþykktur með miklum meirihluta
  4. 3/13/2024 11:10:50 AM Atkvæðagreiðsla um kjarasamning SGS og SA hefst í dag