Að gefnu tilefni frá framkvæmdastjóra SGS

Fundir Samninganefndar SGS eru eðli máls samkvæmt lokaðir fundir og umræður þar trúnaðarmál. Vegna umræðu um einstök efnisatriði á heimasíðu Afls er ástæða til að staðfesta að formaður Framsýnar stéttarfélags lét á fundum nefndarinnar bóka andstöðu sína við hugmyndir sem voru til umræðu um breytingar á dagvinnutímabili, álög og fleira, áður en Framsýn tók samningsumboðið til sín. Á fundum samninganefndar fara fram hreinskiptnar og kraftmiklar umræður og misjöfnum sjónarmiðum sýnd virðing eins og vera bera í félagslegum samtökum. Flosi Eiríksson, framkvæmdastjóri SGS
  1. 4/30/2024 2:50:44 PM Fjölbreytt dagskrá um land allt á baráttudegi verkalýðsins
  2. 4/29/2024 3:05:43 PM Orlofsuppbót/ persónuuppbót 2024
  3. 4/16/2024 2:46:16 PM Nýjar reiknivélar
  4. 3/22/2024 2:49:34 PM Nýir kauptaxtar SGS og SA