Alþjóðleg ráðstefna IUF á Íslandi

Dagana 27.-29. mars stóðu IUF (alþjóðasamtök starfsfólks í matvælaiðnaði, landbúnaði og hótelum) fyrir alþjóðlegri ráðstefnu launafólks í fiskvinnslu og fiskeldi á Hótel Natura í Reykjavík. Starfsgreinasambandið á aðild að samtökunum og aðstoðaði við skipulagningu ráðstefnunnar. Gestir ráðstefnunnar komu víða að, m.a. frá ýmsum Evrópulöndum, Asíu, Kyrrahafsríkjum og Afríku.

Tilgangur ráðstefnunnar var að sameina fólk sem starfar í fiskvinnslu og fiskeldi á heimsvísu, stuðla að frekari sjálfbærni og vinna að bættum aðstæðum launafólks í greinunum. Á ráðstefnunni hlýddu gestir á hin ýmsu fróðlegu erindi og unnu að stefnumótun fyrir samtökin. Þriðji og síðasti dagur ráðstefnunnar var svo helgaður heimsóknum í hin ýmsu fyrirtæki í Grindavík og nágrenni, m.a. Vísi hf., bleikjueldi Samherja, Stolt Sea Farm og Fisktækniskóla Íslands. Á meðfylgjandi myndum má sjá hópinn samankominn í starfsstöðvum Vísis í Grindavík.

  1. 4/30/2024 2:50:44 PM Fjölbreytt dagskrá um land allt á baráttudegi verkalýðsins
  2. 4/29/2024 3:05:43 PM Orlofsuppbót/ persónuuppbót 2024
  3. 4/16/2024 2:46:16 PM Nýjar reiknivélar
  4. 3/22/2024 2:49:34 PM Nýir kauptaxtar SGS og SA