Baráttudagur verklýðsins haldinn hátíðlegur um land allt
Aðildarfélög Starfsgreinasambands Íslands boða til baráttufunda, hátíðarhalda og kröfuganga víða um land á baráttudegi verkalýðsins, 1. maí. Einkunnarorð 1. maí í ár eru Jöfnuður býr til betra samfélag. Dagskráin er að vanda afar fjölbreytt en hér að neðan má sjá viðburði á hverjum stað fyrir sig í stafrófsröð. Nánari dagskrá hefur verið auglýst í fréttabréfum félaganna og á heimasíðum viðkomandi stéttarfélags. Félagar og aðrir eru hvattir til að mæta, sýna samstöðu og brýna sig í kjarabaráttunni sem framundan er!
Akureyri
Göngufólk safnast saman við Alþýðuhúsið Kl. 13:30 en hálftíma síðar verður lagt af stað við undirleik Lúðrasveitar Akureyrar
Hátíðardagskrá í Menningarhúsinu Hofi að lokinni kröfugöngu
Elín Björg Jónsdóttir, formaður BSRB og Anna Júlíusdóttir, varaformaður Einingar-Iðju flytja ávörp
Sveppi og Villi og Jónas Þór Jónasson skemmta
Kaffiveitingar að lokinni dagskrá
Akranes
Safnast verður saman við Kirkjubraut 40, kl. 14:00 og genginn verður hringur á neðri-Skaga. Undirleik í göngu annast Skólahljómsveit Akraness
Að göngu lokinni verður hátíðardagskrá í sal Verkalýðsfélags Akraness á 3ju hæð Kirkjubrautar 40
Ræðumaður dagsins: Vilhjálmur Birgisson
Karlakórinn Svanir syngur nokkur lög
Kaffiveitingar
Frítt í bíó fyrir börnin í Bíóhöllinni kl. 15:00
Blönduós
Kaffiveitingar í boði Stéttarfélagsins Samstöðu í félagsheimilinu á Blönduósi kl. 15
Tónlistaratriði hjá nemenda Tónlistarskóla Austur-Húnavatnssýlsu
Ræðumaður dagsins: Guðmundur Gunnarsson, fyrrverandi formaður Rafiðnaðarsambands Íslands
Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps flytur nokkur lög
Bíósýning fyrir börnin, góðar veitingar og góð dagskrá
Bolungarvík
Verkalýðs- og sjómannafélag Bolungarvíkur býður í kaffi og kökur í félagsheimili Bolungarvíkur
8. og 9. bekkur Grunnskóla Bolungarvíkur sér um kaffiveitingar
Tónlistaskóli Bolungarvíkur sér um tónlist og söng
Laddawan Dagbjartsson sér um dans
Borgarfjörður eystri
Hátíðardagskrá verður í Félagsheimilinu Fjarðarborg kl. 12.00
Kvenfélagið Eining sér um veitingar
Ræðumaður: Reynir Arnórsson
Borgarnes
Hátíðarhöldin hefjast í Hjálmakletti kl. 14
Hátíðin sett: Eiríkur Þór Theódórsson, stjórnarmaður í ASÍ-UNG og trúnaðarmaður hjá Stéttarfélagi Vesturlands
Barnakór Borgarness syngur undir stjórn Steinunnar Árnadóttur
Ræða dagsins: Signý Jóhannesdóttir formaður Stéttarfélags Vesturlands
Nemendur úr þriðja bekk Grunnskóla Borgarness með atriði
Söngfjölskyldan úr Kveldúlfsgötunni flytur nokkur lög, Zsuzsanna Budai leikur með á flygilinn
Internasjónalinn
Kaffiveitingar að lokinni dagskrá.
Tvær kvikmyndasýningar verða fyrir börn í Óðali kl. 13:30 og 15:30, boðið verður upp á popp og ávaxtasafa
Breiðdalsvík
Hátíðardagskrá verður á Hótel Bláfelli kl. 14:00
Kaffiveitingar og tónlistaratriði.
Ræðumaður: Sigríður Dóra Sverrisdóttir
Búðardalur
Stéttarfélag Vesturlands og Starfsmannafélag Dala og Snæfellsnessýslu standa saman að samkomu í Dalabúð kl.14.30
Kynnir: Kristín G.Ólafsdóttir stjórn SDS
Ræðumaður: Geirlaug Jóhannsdóttir
Skemmtikraftar: Guðrún Gunnars og Jogvan
Gestum er boðið uppá kaffiveitingar að dagskrá lokinni
Djúpivogur
Hátíðardagskrá verður á Hótel Framtíð kl. 11:00
Morgunverður og tónlistaratriði
Ræðumaður: Sverrir Mar Albertsson
Egilsstaðir
Hátíðardagskrá verður á Hótel Héraði kl. 10.00
Morgunverður og tónlistaratriði.
Ræðumaður: Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir
Eskifjörður
Hátíðardagskrá verður í Melbæ Félagsheimili eldri borgara kl. 14:00
Félag eldri borgara sér um kaffiveitingar
Tónskóli Reyðarfjarðar
Ræðumaður: Þröstur Bjarnason
Fáskrúðsfjörður
Hátíðardagskrá verður í Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar kl. 15:00
Kaffiveitingar. 9. bekkur grunnskólans sér um kaffiveitingar
Tónlistarskóli Fáskrúðsfjarðar og Stöðvarfjarðar
Ræðumaður: Sverrir Mar Albertsson
Fjallabyggð
Dagskrá í Fjallabyggð verður í sal félaganna, Eyrargötu 24b Siglufirði frá kl. 14 til 17
Margrét Jónsdóttir flytur ávarp
Kaffiveitingar
Grundarfjörður
Dagskrá hefst kl. 14:30 í Samkomuhúsinu
Kynnir: Helga Hafsteinsdóttir formaður SDS
Ræðumaður: Guðbjörg Jónsdóttir varaformaður Vlf. Snæfellinga
Veitingar í boði félaganna
Daníel Örn Sigurðsson Töframaður
Helgi Björnsson ásamt gítarleikara
Alda Dís Arnardóttir sigurvegari Ísland got talent og Bragi Þór Ólafsson á gítar taka nokkur lög
Hafnarfjörður
Safnast saman fyrir framan Ráðhús Hafnarfjarðar kl. 13:30
Kröfuganga leggur af stað kl. 14 - gengið verður upp Reykjavíkurveg, Hverfisgötu, Smyrlahraun, Arnarhraun, Sléttahraun og að Hraunseli við Flatahraun
Hátíðarfundur hefst í Hraunseli, Flatahrauni 3 kl. 14:30
Fundastjóri: Jóhanna M. Fleckenstein
Ávarp dagsins: Karl Rúnar Þórsson formaður Starfsmannafélags Hafnarfjarðar
Ræða: Kolbeinn Gunnarsson formaður Verkalýðsfélagsins Hlífar
Skemmtiatriði: Sönghópurinn Voces masculorum kemur og tekur nokkur lög fyrir gesti
Hornafjörður
Kröfuganga frá Víkurbraut 4 kl 13:30, takið með ykkur kröfuspjöld
Hátíðardagskrá á Hótel Höfn kl. 14:00, kaffiveitingar
Lúðrasveit Hornafjarðar, tónlistaratriði
Ræðumaður: Lars Jóhann Andrésson
Húsavík
Stéttarfélögin í Þingeyjarsýslum bjóða til hátíðarhalda í íþróttahöllinni kl. 14
Ræðumenn: Aðalsteinn Baldursson formaður og Ósk Helgadóttir varaformaður Framsýnar
Jóhannes Kristjánsson fer með gamanmál
Óskar Pétursson syngur nokkur lög
Regína Ósk Óskarsdóttir, Bryndís Ásmundsdóttir og Sigríður Beinteinsdóttir syngja lög með Tinu Turner
Stúlknakór Húsavíkur og Steini Hall blæs í lúður
Ísafjörður
Lagt verður af stað frá Baldurshúsinu, Pólgötu 2 kl. 11:00. Gengið verður að Pollgötu og þaðan niður að Edinborgarhúsi með Lúðrasveitina í fararbroddi
Ræðumaður dagsins: Ólafía B. Rafnsdóttir formaður VR
Tónlistaratriði
Pistill dagsins: Elísabet Gunnarsdóttir arkitekt
Söngatriði - Dagný Hermannsdóttir og Svanhildur Garðarsdóttir
Súpa í boði 1. maí nefndar í Edinborgarhúsinu að hátíðarhöldum loknum
Kvikmyndasýningar fyrir börn í Ísafjarðarbíói kl. 14:00 og 16:00
Neskaupstaður
Hátíðardagskrá verður á Hildibrand hótel kl.14:00
Félag Harmonikkuunnenda spila
Ræðumaður: Sigurður Hólm Freysson
Reyðarfjörður
Hátíðardagskrá verður í Safnaðarheimili Reyðarfjarðar kl. 15:00
9. bekkur Grunnskóla Reyðarfjarðar sér um kaffiveitingar
Tónskóli Reyðarfjarðar
Ræðumaður: Pálína Margeirsdóttir
Reykjanesbær
Dagskrá í Stapa kl. 13:45 - Guðmundur Hermannsson leikur ljúfa tónlist
Setning kl. 14 - Kristján Gunnarsson formaður VSFK
Sigríður og Sólborg Guðbrandsdætur syngja nokkur lög
Ræða dagsins: Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ
Sveitapiltins draumur – Atriði frá minningartónleikum til heiðurs
Rúnari Júlíussyni sem hefði orðið 70 ára á þessu ári
Kvennakór Suðurnesja flytja nokkur lög
Börnum boðið á sýningu í Sambíói Keflavík kl. 13
Reykjavík
Safnast saman á Hlemmi kl. 13
Kröfugangan leggur af stað kl. 13:30. Lúðrasveit verkalýðsins og Lúðrasveitin Svanur spila í göngunni og á Ingólfstorgi
Útifundur á Ingólfstorgi Kl. 14.10, fundarstjóri Þórarinn Eyfjörð
Gradualekór Langholtskirkju syngur
Árni Stefán Jónsson formaður SFR heldur ræðu
Ljótikór flytur tvö lög
Hilmar Harðarson formaður Samiðnar heldur ræðu
Reykjavíkurdætur flytja tvö lög
Kórar og fundarmenn syngja Maístjörnuna
„Internationallinn“ sunginn og leikinn
Ræður eru táknmálstúlkaðar
Hulda Halldórsdóttir syngur á táknmáli með kórunum
Hvatningarorð fundarstjóra frá aðstandendum fundarins
Efling-stéttarfélag býður félagsmönnum sínum upp á kaffi í Valsheimilinu að Hlíðarenda að fundi loknum.
Sandgerði
Verkalýðs og sjómannafélag Sandgerðis verður með opið hús að Tjarnargötu 8, húsi félagsins frá kl. 15 – 17
Kaffi og meðlæti
Selfoss
Kröfuganga frá Austurvegi 56 kl. 11, félaga í Sleipni fara fyrir göngunni á hestum
Ræðumenn: Drífa Snædal framkvæmdastjóri SGS og Halldóra Magnúsdóttir formaður Nemendafélags FS
Lína langsokkur mætir á svæðið og Karlakór Rangæinga syngur nokkur lög
Bílasýning
Veitingar í boði stéttarfélaganna á Hótel Selfossi
Seyðisfjörður
Hátíðardagskrá verður í Félagsheimilinu Herðubreið kl. 15:00
8. og 9. bekkir Seyðisfjarðarskóla sjá um kaffiveitingar og skemmtiatriði
Ræðumaður: Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir
Skagafjörður
Stéttarfélögin í Skagafirði bjóða til hátíðardagskrár kl. 15:00 í sal Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra
Ræðumaður verður Björn Snæbjörnsson formaður Einingar Iðju og Starfsgreinasambands Íslands
Að venju verður boðið upp á glæsilegt kaffihlaðborð og skemmtiatriði. Að þessu sinni verða þau í höndum Kirkjukórs Sauðárkrókskirkju og nemenda úr 10.bekk Árskóla, auk þess sem Geirmundur Valtýsson mun leika fyrir gesti af sinni alkunnu snilld
Snæfellsbær
Dagskrá hefst kl. 15:30 í Klifi
Kynnir: Guðmunda Wíum Stjórn SDS
Ræðumaður : Sigurður A Guðmundsson formaður Vlf. Snæfellinga
Veitingar í boði félaganna
Daníel Örn Sigurðsson Töframaður
Alda Dís Arnardóttir sigurvegari Ísland got talentog Bragi Þór Ólafsson á gítar
Helgi Björnsson ásamt gítarleikara
Sýning eldriborgara
Boðið verður í bíó í Klifi kl. 18.00 fyrir alla á Snæfellsnesi
Stykkishólmur
Dagskrá hefst kl. 13:30 á Hótel Stykkishólmi
Kynnir: Einar Strand
Veitingar í boði félaganna
Ræðumaður: Sigurður A Guðmundsson formaður Vlf. Snæfellinga
Daníel Örn Sigurðsson Töframaður
Helgi Björnsson ásamt gítarleikara
Lúðrasveit Stykkishólms
Stöðvarfjörður
Hátíðardagskrá í Saxa guesthouse kl. 15:00
Kaffiveitingar
Tónlistarskóli Fáskrúðsfjarðar og Stöðvarfjarðar
Ræðumaður: Sigríður Dóra Sverrisdóttir
Suðureyri
Kröfuganga frá Brekkukoti kl. 14
Boðsund barna í Sundlaug Suðureyrar
Kaffiveitingar í Félagsheimili Súgfirðinga
Ræða dagsins - Söngur og hljóðfæraleikur
Vestmannaeyjar
Dagskráin hefst með baráttufundi í Alþýðuhúsinu kl. 15:00
Ræðumaður: Arnar Hjaltalín formaður Drífandi stéttarfélags
Kaffi kakó og vöfflur
Ungir nemendur í bland við eldri í Tónskóla Vestmannaeyja leika og syngja fyrir verkalýðinn
Vopnafjörður
Hátíðardagskrá verður í Félagsheimilinu Miklagarði kl. 14:00
Kvenfélagskonur sjá um kaffiveitingar. Tónlistaratriði til skemmtunar
Ræðumaður: Kristján Magnússon
Þórshöfn
Verkalýðsfélag Þórshafnar býður öllum frítt í Íþróttamiðstöðina frá kl.11 til 14
Súpa og brauð í hádeginu er einnig í boði verkalýðsfélagsins