Efling: Fjárlögin uppskrift að ófriði

Á félagsfundi Eflingar-stéttarfélags var samþykkt ályktun þar sem áformum í nýju fjárlagafrumvarpi er harðlega mótmælt. Félagsfundur Eflingar-stéttarfélags mótmælir harðlega þeim áformum í fjárlagafrumvarpinu sem leiða mun til skerðingar á kjörum almennings: Við mótmælum hækkun virðisaukaskatts á matvælum úr 7% upp í 12%. Við mótmælum styttingu á tímabili atvinnuleysisbóta um hálft ár þegar um 1200 félagsmenn Eflingar eru án atvinnu. Við mótmælum harðlega þeim áformum ríkisstjórnarinnar að standa ekki við gefin loforð í tengslum við gerða kjarasamninga með því að fella niður framlag ríkissjóðs til starfsendurhæfingar og skerða þar með getu VIRK starfsendurhæfingarsjóðs til þess að sinna hlutverki sínu í baráttu við örorkuna. Við mótmælum þeirri stefnu ríkisvaldsins að auka enn á kostnað almennings í lyfjakostnaði og komugjöldum á heilsugæslustöðvar. Við hörmum að svíkja eigi margítrekaðar yfirlýsingar ríkisstjórnar um átak í  húsnæðismálum þar sem ekki á að leggja neina fjármuni til málaflokksins. Við hörmum að stuðningur í formi vaxtabóta vegna húsnæðiskaupa lækkar að raungildi fimmta árið í röð. Félagsfundur Eflingar-stéttarfélags krefst endurskoðunar á þeim forsendum sem færa byrðar á herðar þeirra sem minna hafa til ráðstöfunar. Það er hlutverk stjórnvalda að stuðla að stöðugleika í efnahagsmálum og leggja grundvöll að auknum jöfnuði í samfélaginu en magna ekki upp ófrið á vinnumarkaði. Fjárlagafrumvarpið sem nú liggur fyrir er uppskrift að ófriði á vinnumarkaði.
  1. 4/16/2024 2:46:16 PM Nýjar reiknivélar
  2. 3/22/2024 2:49:34 PM Nýir kauptaxtar SGS og SA
  3. 3/20/2024 11:48:06 AM Kjarasamningur SGS og SA samþykktur með miklum meirihluta
  4. 3/13/2024 11:10:50 AM Atkvæðagreiðsla um kjarasamning SGS og SA hefst í dag