Efling og Reykjavíkurborg undirrita nýjan kjarasamning

Efling stéttarfélag skrifaði undir nýjan kjarasamning við Reykjavíkurborg föstudagskvöldið 13. nóvember síðastliðinn. Samningurinn gildir afturvirkt frá 1. maí 2015 til 31. mars 2019. Samningurinn felur í sér eftirfarandi launabreytingar:
  • Við upphaf samnings eða 1. maí 2015 hækka launataxtar um 25.000 kr. en þó að lágmarki um 7,7%.
  • Þann 1. júní 2016 hækka launataxtar um 6%.
  • Þann 1. júní 2017 kemur ný launatafla þar sem lífaldursþrep falla niður en starfsaldursþrep koma inn í staðinn. Auk þess er tenging starfsmats við launatöflu breytt.
  • Þann 1. júní 2018 hækka launataxtar um 3%.
  • Sérstök eingreiðsla kemur 1. febrúar 2019 að upphæð 40.000, miðað við þá sem eru í fullu starfi 1. janúar 2019 og hlutfallslega fyrir þá sem eru í hlutastarfi.
Þá hækkar desemberuppbót um 22,1% á samningstímanum og fer í 96.600 kr. í lok samnings og orlofsuppbætur um 21,5% verða 48.000 kr í lok samningstímans. Atkvæðagreiðsla um samninginn hefst 20. nóvember og atkvæði þurfa að hafa borist fyrir þriðjudaginn 1. desember nk. kl. 12.00 en síðar þann dag verður niðurstaðan kynnt. Hægt er sjá samninginn í heild sinni hér.
Samningaviðræður SGS við Samband íslenskra sveitarfélaga, sem slitnaði upp úr í síðustu viku, eru nú á forræði ríkissáttasemjara og var fyrsti fundur undir hans stjórn boðaður kl. 10:30 í morgun. SGS mun flytja frekari fregnir að gangi viðræðnanna þegar þær liggja fyrir.
 
  1. 4/30/2024 2:50:44 PM Fjölbreytt dagskrá um land allt á baráttudegi verkalýðsins
  2. 4/29/2024 3:05:43 PM Orlofsuppbót/ persónuuppbót 2024
  3. 4/16/2024 2:46:16 PM Nýjar reiknivélar
  4. 3/22/2024 2:49:34 PM Nýir kauptaxtar SGS og SA