Endurskoðun kjarasamninga rædd á formannafundi

Formannafundur Starfsgreinasambandsins var haldinn á Selfossi 4. desember síðastliðinn og litaðist hann eðlilega af uppsagnarákvæði kjarasamninga. Ólafur Darri Andrason hagfræðingur ASÍ hélt framsögu um hvaða forsendur kjarasamninga hefðu haldið og hverjar væru brostnar. Þá fór hann yfir hvernig kjör hefðu þróast á þessu samningstímabili. Ljóst er að forsendur eru fyrir endurskoðun kjarasamninga en málið er enn á umræðustigi innan einstakra félaga og verður rætt nánar á aukaformannafundi sem boðað hefur verið til 15. janúar næstkomandi. Á fundinum var líka farið yfir það sem er efst á baugi hjá hverju félagi fyrir sig, ASÍ-UNG kynnti starfsemi sína við góðan fögnuð, skýrsla stjórnar og framkvæmdastjóra var kynnt og sömuleiðis skýrsla um erlend samskipti. Á dagskrá var einnig að fara yfir úrvinnslu bókana í kjarasamningum sem snúa aðallega að starfaflokkun og fræðslumálum innan ákveðinna greina. Tillaga SGS að kjarasamningi við NPA (Notendastýrð Persónuleg Aðstoð) – miðstöðina var kynnt og farið var yfir breytingar á almannatengslum SGS. Fundurinn fékk einnig góða kynningu á atvinnuástandinu á Suðurlandi frá Ragnheiði Hergeirsdóttur, skrifstofustjóra Vinnumálastofnunar á Suðurlandi.
  1. 4/16/2024 2:46:16 PM Nýjar reiknivélar
  2. 3/22/2024 2:49:34 PM Nýir kauptaxtar SGS og SA
  3. 3/20/2024 11:48:06 AM Kjarasamningur SGS og SA samþykktur með miklum meirihluta
  4. 3/13/2024 11:10:50 AM Atkvæðagreiðsla um kjarasamning SGS og SA hefst í dag