Vinnueftirlitið stendur fyrir vinnuverndarráðstefnu á Hótel Borgarnesi þann 6. október kl. 13-16. Ráðstefnan er haldin í tengslum við Vinnuverndarvikuna 2017 og ber yfirskriftina „VINNUVERND ALLA ÆVI – Er hægt að eldast í ferðaþjónustu?“ Á ráðstefnunni verður sjónum beint að mikilvægi vinnuverndar í ferðaþjónustu og áhrifum vinnuumhverfisins á starfsmenn. Fjölbreyttur hópur fyrirlesara mun taka þátt í ráðstefnunni og eru áhugasamir beðnir um að skrá sig á viðburðinn á heimasíðu stofnunarinnar,
www.vinnueftirlitid.is. Aðgangur að ráðstefnunni er öllum opin án endurgjalds en skráning er skilyrði.
Dagskrá:
13:00 - Setning
Margrét S. Björnsdóttir, stjórnarformaður Vinnueftirlitsins
13:10 - Sjálfbærni í ferðaþjónustu – hvar kemur vinnuvernd inn?
Helga Árnadóttir, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar
13:30 - Áhættumat í ferðaiðnaði
Friðjón Axfjörð, sérfræðingur á Samgöngustofu
13:50 - Dagur í lífi leiðsögumanns - í ljósi vinnuverndar
Jakob Jónsson, leiðsögumaður hjá Félagi leiðsögumanna
14.10 - Áskoranir eldra fólks á vinnumarkaði
Óskar Marinó Sigurðsson, mannauðsráðgjafi
14:30 - Hlé
14:50 - OiRA- rafrænt verkfæri til að gera áhættumat á veitingastöðum
Guðmundur Kjerúlf, verkefnastjóri Vinnueftirlit ríkisins
15:10 - Vakinn – hvernig er tekið á vinnuverndarþáttum?
Ólöf Ýr Atladóttir, ferðamálastjóri
15:30 - Er til gæðaumhverfi fyrir starfsmenn í ferðaþjónustu?
Þórir Erlingsson, kennari við Háskólann á Hólum
15:50- 16:00 Samantekt og ráðstefnu slitið
Eyjólfur Sæmundsson, forstjóri Vinnueftirlitsins stýrir.
Ráðstefnustjóri er Þórunn Sveinsdóttir frá Vinnueftirlitinu.