- Ólöglega sjálfboðaliðastarfsemi
- Launastuld
- Ófullnægjandi ráðningasamninga
- Misnotkun á vinnandi fólki
- Brot á ákvæðum um hvíldartíma
- Óviðunandi aðbúnað
- Misnotkun í tengslum við útleigu íbúðarhúsnæðis í eigu atvinnurekanda
Félagsleg undirboð og brotastarfsemi verði ekki liðin á vinnumarkaði
Formenn aðildarfélaga Starfsgreinasambands Íslands komu saman til fundar á Akureyri föstudaginn 7. september og tóku sérstaklega fyrir eftirlit með félagslegum undirboðum og brotastarfsemi á vinnumarkaði. Þá hélt Alþýðusamband Íslands málþing á Akureyri um stöðu fólks af erlendum uppruna á vinnumarkaði hér á landi þar sem fjallað var um gróf brot gegn einstaklingum. Formannafundur Starfsgreinasambandsins krefst þess að stjórnvöld grípi til aðgerða enda hafa stéttarfélögin takmörkuð úrræði til viðbragða. Eftirfarandi var samþykkt í kjölfar formannafundarins.
Félagsleg undirboð og brotastarfsemi verði ekki liðin á vinnumarkaði
Einn fylgifiska stóraukinnar ferðaþjónustu og byggingaframkvæmda síðustu ár eru aukin félagsleg undirboð á vinnumarkaði og bein misnotkun á fólki sem kemur hingað til lands að vinna. Aðildarfélög Starfsgreinasambands Íslands hafa orðið vör við þessa þróun ásamt ótal birtingamynda félagslegra undirboða.
Má þar nefna: