Formannafundur SGS ályktar um húsnæðismál

Svohljóðandi ályktun var samþykkt á formannafundi SGS sem nú stendur yfir á Hótel Laugarbakka í Miðfirði: Húsnæðisvandinn á Íslandi er alvarlegur og kemur verulega niður á lífsgæðum fólks sem er á leigumarkaði eða þarf að kaupa fasteignir dýru verði. Nánast um allt land vantar húsnæði og samhliða mannaflsfreku atvinnulífi stuðlar þetta að miklum húsnæðisvanda. Það færist í aukana að atvinnurekendur sjái starfsfólki fyrir húsnæði. Þessi þróun er bæði skiljanleg en jafnframt áhyggjuefni enda gerir það starfsfólk berskjaldaðra en ella gagnvart atvinnurekanda. Þá hafa verið brögð að því að starfsfólk greiði himinháa leigu fyrir óviðunandi húsnæði, leigu sem er dregin af launum þess og því í raun um kjaraskerðingu að ræða. Óprúttnir atvinnurekendur nýta því húsnæðisskortinn til að þrýsta niður launum og við það verður ekki unað. Starfsgreinasamband Íslands gerir þá kröfu að leiguhúsnæði, hvort sem það er í gegnum atvinnurekanda eða aðra lúti Húsaleigulögum með þeim uppsagnarfresti og réttindum leigutaka sem þar er kveðið á um. Ráðningarsamningur á milli atvinnurekanda og starfsmanns er svo sjálfstæður samningur. Eina undantekningin á þessu er starfsfólk sem vinnur samkvæmt kjarasamningi Starfsgreinasambandsins og Bændasamtaka Íslands en þar er skilgreint hvað má draga af launum fyrir húsnæði og fæði. Það er þó alveg ljóst að skattstofninn er laun fyrir frádrátt.
  1. 4/30/2024 2:50:44 PM Fjölbreytt dagskrá um land allt á baráttudegi verkalýðsins
  2. 4/29/2024 3:05:43 PM Orlofsuppbót/ persónuuppbót 2024
  3. 4/16/2024 2:46:16 PM Nýjar reiknivélar
  4. 3/22/2024 2:49:34 PM Nýir kauptaxtar SGS og SA