Glærur af ráðstefnu um hlutastörf og vaktavinnu

Starfsgreinasamband Íslands hélt ráðstefnu þann 12. janúar síðastliðinn um lífsgæði og kjör starfsfólks í hlutastörfum og vaktavinnu. Fast að 100 manns sótti ráðstefnuna enda fyrirlestrarnir hverjum öðrum betri. Streymt var frá rástefnunni og má sjá upptökur á facebook-síðu Starfsgreinasambandsins: https://www.facebook.com/starfsgreinasambandislands/?fref=ts. Hér má svo nálgast glærurnar sem fyrirlesararnir notuðust við: Kynning á niðurstöðum norrænnar rannsóknar um hlutastörf, tíðni þeirra og ástæður, Guðbjörg Linda Rafnsdóttir, prófessor í félagsfræði hjá Háskóla Íslands Tímabundin störf og heilsa, Kolbeinn Hólmar Stefánsson, sérfræðingur hjá Hagstofu Íslands. Nýjustu rannsóknir á áhrifum streitu á heilsu og hver eru úrræðin, Ingibjörg Jónsdóttir, prófessor og yfirmaður Streiturannsóknastofnunar Gautaborgar. Leiðir til að líða betur í vaktavinnu, Lára G. Sigurðardóttir læknir og fræðslustjóri hjá Krabbameinsfélagi Íslands.
  1. 4/30/2024 2:50:44 PM Fjölbreytt dagskrá um land allt á baráttudegi verkalýðsins
  2. 4/29/2024 3:05:43 PM Orlofsuppbót/ persónuuppbót 2024
  3. 4/16/2024 2:46:16 PM Nýjar reiknivélar
  4. 3/22/2024 2:49:34 PM Nýir kauptaxtar SGS og SA