Greitt úr Félagsmannasjóði SGS í annað sinn

Félagsmenn aðildarfélaga SGS sem starfa hjá sveitarfélögum fá í samræmi við síðustu kjarasamninga greitt 1,5% af launum sínum í Félagsmannasjóð SGS.

Í dag, 1. febrúar, var greitt úr sjóðnum í annað sinn, samtals tæplega 200 milljónir króna til u.þ.b. 4.400 félagsmanna.

Félagsmönnum aðildarfélaga SGS, sem starfa hjá sveitarfélögum, og eiga eftir að sækja um í sjóðinn er bent á að fylla út þetta form. Fyrirspurnum varðandi greiðslur úr sjóðnum er hægt að koma á framfæri í tölvupósti á netfangið sgs@sgs.is. 

Greitt verður aftur úr sjóðnum 10. febrúar næstkomandi.

  1. 4/30/2024 2:50:44 PM Fjölbreytt dagskrá um land allt á baráttudegi verkalýðsins
  2. 4/29/2024 3:05:43 PM Orlofsuppbót/ persónuuppbót 2024
  3. 4/16/2024 2:46:16 PM Nýjar reiknivélar
  4. 3/22/2024 2:49:34 PM Nýir kauptaxtar SGS og SA