Kjaramálaráðstefna - mikilvægur undirbúningur

Dagana 6. og 7. desember næstkomandi mun Starfsgreinasamband Íslands standa fyrir kjaramálaráðstefnu um kjarasamningsamninga SGS og Samtaka atvinnulífsins. Ráðstefnan fer fram Hótel Reykjavík Natura, en ráðstefnuna sækja fulltrúar frá aðildarfélögum SGS. Ráðstefnan mun byggjast á samlestri á kjarasamningum en einnig verða ákveðin atriði tekin til sérstakrar umfjöllunar. Starfsmenn SGS munu svo í kjölfarið vinna úr niðurstöðum ráðstefnunnar og dreifa þeim meðal sinna aðildarfélaga, sem munu m.a. geta nýtt niðurstöðurnar við gerð sinna kröfugerða. SGS hefur áður staðið fyrir ráðstefnum á borð við þessa og ríkti þá almenn ánægja með afraksturinn, enda nýttist hann vel í kjarasamningsviðræðunum.
  1. 4/16/2024 2:46:16 PM Nýjar reiknivélar
  2. 3/22/2024 2:49:34 PM Nýir kauptaxtar SGS og SA
  3. 3/20/2024 11:48:06 AM Kjarasamningur SGS og SA samþykktur með miklum meirihluta
  4. 3/13/2024 11:10:50 AM Atkvæðagreiðsla um kjarasamning SGS og SA hefst í dag