Talningu atkvæða vegna
sáttatillögu ríkissáttasemjara, sem undirrituð var 20. febrúar síðastliðinn, er nú lokið. Af þeim 14 félögum innan SGS sem greiddu atkvæði um tillöguna samþykktu 13 félög hana en eitt þeirra felldi sáttatillöguna - Drífandi í Vestmannaeyjum. Að meðaltali var kjörsókn í aðildarfélögunum 20,3% og sveiflaðist hún talsvert milli félaga, allt frá 7,5% upp í
46,7% kjörsókn.
Niðurstöður atkvæðagreiðslna í einstaka félögum:
Félag |
Kjörsókn |
Auðir og ógildir |
JÁ |
NEI |
JÁ % |
NEI % |
Niðurstaða |
Aldan |
12,30% |
0 |
73 |
7 |
91% |
9% |
Samþ. |
Báran |
13,70% |
4 |
122 |
24 |
81% |
16% |
Samþ. |
Drífandi |
46,70% |
5 |
99 |
161 |
37% |
61% |
Felld |
Flóabandalagið |
13,20% |
25 |
2149 |
494 |
81% |
19% |
Samþ. |
Eining-Iðja |
15,20% |
0 |
367 |
70 |
84% |
16% |
Samþ. |
Framsýn |
13,20% |
3 |
89 |
18 |
81% |
16% |
Samþ. |
Samstaða |
18,00% |
1 |
40 |
10 |
78% |
20% |
Samþ. |
Stétt Vest |
21,90% |
0 |
72 |
20 |
78% |
22% |
Samþ. |
VLFA |
10,30% |
6 |
63 |
5 |
85% |
7% |
Samþ. |
Vlf. Grindavíkur |
41,20% |
3 |
235 |
12 |
95% |
5% |
Samþ. |
Vlf. Snæfellinga |
7,50% |
2 |
42 |
12 |
75% |
21% |
Samþ. |
Vlf. Þórshafnar |
30,40% |
1 |
32 |
5 |
84% |
13% |
Samþ. |
Samtals/meðaltal |
20,30% |
50 |
3383 |
838 |
79% |
20% |
|
Þess má geta að til viðbótar við sáttatillögu ríkissáttasemjara þá mun
kjarasamningurinn sem undirritaður var 21. desember sl. nú taka gildi í þeim félögum sem samþykktu sáttatillöguna. Þess ber einnig að geta að þeim fimm félögum innan SGS sem samþykktu samninginn frá 21. desember stendur til boða að skrifa undir umrædda sáttatillögu.[hr toTop="false" /]