Ræstingarauki um næstu mánaðarmót

Í kjarasamningi SGS og SA, sem undirritaður var í mars síðastliðnum, var samið um svokallaðan ræstingarauka fyrir starfsfólk í ræstingum. Þetta þýðir að ræstingarfólk fær sérstaka viðbótargreiðslu með launum fyrir ágúst sem greidd verða út um næstu mánaðamót. 

Ræstingaraukinn skal greiddur út mánaðarlega og reiknast hann í hlutfalli við starfshlutfall, en fyrir fullt starf er hann 19.500 kr. á mánuði. Hafa ber í huga að ræstingaraukinn er ekki hluti af grunnlaunum og myndar þar af leiðandi ekki stofn fyrir yfirvinnu og aðrar álagsgreiðslur. Í reiknivél SGS geta félagsmenn séð hvernig ræstingaraukinn sem og aðrar kjarasamningsbundar hækkanir í kjarasamningi SGS og SA koma til með að líta út m.v. sínar forsendur.

Félagsmenn í aðildarfélögum SGS sem starfa við ræstingar á almennum vinnumarkaði eru hvattir til að skoða launaseðla sína vel um næstu mánaðarmót og ganga úr skugga um að greiðslan hafi skilað sér.

 

 

  1. 7/1/2025 3:01:33 PM SGS óskar eftir framkvæmdastjóra
  2. 6/4/2025 1:11:55 PM Burt með mismunun - ný vefsíða
  3. 5/5/2025 3:54:17 PM VLFS vinnur mál í Félagsdómi vegna alvarlegra brota gegn fél…
  4. 5/2/2025 2:10:50 PM Orlofsuppbót 2025 - reiknivélar fyrir félagsmenn