SGS opnar nýjan vef

Nýr og endurbættur vefur Starfsgreinasambands Íslands var settur í loftið á þingi sambandsins sem lauk sl. föstudag. Ýmsar breytingar hafa verið gerðar á vefnum sem miða að því að  bæta þjónustu við alla þá sem eiga erindi við SGS. Lögð er áhersla á stílhreint útlit, einfalda uppbyggingu og síðast en ekki síst að upplýsingar á nýjum vef séu sem aðgengilegastar og settar fram á greinargóðan hátt. Á vefnum má m.a. nálgast ýtarlegar upplýsingar um erlend systursamtök SGS, umsagnir og ályktanir sambandsins, gögn frá þingum og ársfundum sem og gagnlegar upplýsingar um kjara-, og fræðslumál og réttindi launafólks. Ýmsar aðrar nýjungar munu bætast við á næstu vikum. Gerð vefsins var í höndum Hype ehf. sem sá um forritun og grafíska hönnun ásamt því að vera vistunaraðili vefsins. Allar ábendingar og athugasemdir varðandi vefinn eru vel þegnar og skulu sendar á netfangið arni@sgs.is. Þess má geta að um þessar mundir er jafnframt verið að vinna að innri vef fyrir Starfsgreinasambandið, en stefnt er á að hann komist í gagnið á næstu vikum.
  1. 4/30/2024 2:50:44 PM Fjölbreytt dagskrá um land allt á baráttudegi verkalýðsins
  2. 4/29/2024 3:05:43 PM Orlofsuppbót/ persónuuppbót 2024
  3. 4/16/2024 2:46:16 PM Nýjar reiknivélar
  4. 3/22/2024 2:49:34 PM Nýir kauptaxtar SGS og SA