Staðall fyrir vinnustaðaskírteini

Starfsgreinasamband Íslands vill vekja athygli á að í byrjun september s.l. var gefinn út staðall fyrir útgáfu vinnustaðaskírteina. Í staðlinum er m.a. kveðið á um hvað skírteinin þurfa að uppfylla til að teljast gild.  Í meginatriðum skulu skírteinin vera framleidd úr hörðu efni og á þeim skal koma fram nafn og kennitala bæði atvinnurekanda og starfsmanns og starfsheiti viðkomandi ásamt mynd af starfsmanninum.  Í samkomulagi ASÍ og SA um vinnustaðaskírteini er kveðið á um að þremur mánuðum eftir útgáfu staðalsins skulu öll ný skírteini gefin út í samræmi við hann og er miðað  við áramótin 2012-13.  Þar er einnig kveðið á um  að endurgerð skírteina sem gefin voru út fyrir gildistöku staðalsins skuli lokið sex mánuðum frá gildistöku hans, þ.e. um mánaðarmótin mars-apríl 2013. Einnig er vakin athygli á að með útgáfu staðalsins fjölgar þeim starfsgreinum sem falla undir lögin um vinnustaðaskírteini og eftirlit á vinnustöðum. Nálgast má upptalningu á öllum þeim atvinnu- og starfsgreinum sem falla undir lögin á vefsíðunniwww.skirteini.is. Hægt er að nálgast staðalinn hjá Staðlaráði Íslands gegn greiðslu.
  1. 4/30/2024 2:50:44 PM Fjölbreytt dagskrá um land allt á baráttudegi verkalýðsins
  2. 4/29/2024 3:05:43 PM Orlofsuppbót/ persónuuppbót 2024
  3. 4/16/2024 2:46:16 PM Nýjar reiknivélar
  4. 3/22/2024 2:49:34 PM Nýir kauptaxtar SGS og SA