Í dag hélt Norræna byggingar- og tréiðnaðarsambandið (NBTF) stjórnarfund sinn í Stokkhólmi í Svíþjóð. Sigurður Bessason, formaður Eflingar, situr í stjórn NBTF fyrir hönd SGS og sat hann fundinn ásamt Drífu Snædal, framkvæmdastjóri SGS, en hún er varamaður í stjórn NBTF. Rafiðnaðarsambandið og Samiðn áttu einnig fulltrúa á fundinum, þá Kristján Þórð Snæbjarnarson formann RSÍ og Finnbjörn A. Hermannsson, formann Samiðnar.