Sveitafélög sýni ábyrgð - ályktun samninganefnar SGS

Samninganefnd Starfsgreinasambands Íslands skorar á sveitarfélög landsins að standa undir þeirri ábyrgð sem þau bera vegna kjarasamninga. SGS krefst þess að sveitarfélögin haldi aftur af kostnaðarhækkunum og hækkunum á  margvíslegum þjónustugjöldum og velti ekki auknum kostnaði yfir á almennt launafólk. Sjálfvirkar hækkanir á fasteignagjöldum í fjölmörgum sveitarfélögum eru algerlega óásættanlegar og bitna harðast á þeim sem síst skyldi. Það þurfa allir í samfélaginu að taka höndum saman um að bæta afkomu þeirra lægst launuðu í samfélaginu og tyggja þeim raunverulegar kjarabætur.
  1. 4/30/2024 2:50:44 PM Fjölbreytt dagskrá um land allt á baráttudegi verkalýðsins
  2. 4/29/2024 3:05:43 PM Orlofsuppbót/ persónuuppbót 2024
  3. 4/16/2024 2:46:16 PM Nýjar reiknivélar
  4. 3/22/2024 2:49:34 PM Nýir kauptaxtar SGS og SA