Vertu á verði

Í febrúar sl. hleypti ASÍ og aðildarfélög þess af stað herferð gegn verðhækkunum undir yfirskriftinni – Vertu á verði. Átakið er hvatning til almennings og fyrirtækja um að taka höndum saman til að rjúfa vítahring verðbólgunnar og er liður í eftirfylgni með samkomulags ASÍ og SA við framlengingu kjarasamninga í upphafi árs. Hugmyndin er fyrst og fremst að vekja fólk til meðvitundar um verðlagsmál og virkja almenning í að vekja athygli samborgaranna á óeðlilegum hækkunum á vörum og þjónustu. Það skapar umræður og mikilvægt aðhald gagnvart kaupmönnum og þjónustuaðilum. Átakið hefur hlotið góðar viðtökur og heimasíðan www.vertuaverdi.is verið ágætlega sótt. Auglýsingar í nafni aðildarfélaganna hafa verið birtar í útvarpi og skjáauglýsingum í sjónvarpi auk auglýsinga á helstu vefmiðlum. Um miðjan október sl. höfðu um 450 athugasemdir verið settar inn á síðuna og um 47.000 manns heimsótt hana. Athygli vekur að fólk dvelur fremur lengi á síðunni eða í ríflega 3 mínútur að meðaltali, sem telst gott. Það segir okkur að þeir sem heimstækja síðuna lesa þær athugasemdir sem inn koma. Auglýsingaherferð átaksins rann sitt skeið í október en heimasíðan verður þó að sjálfsögðu áfram í loftinu. Hreyfingin hefur auk þess stórt tengslanet til að miðla boðskapnum í gegnum t.d. heimasíður félaga og sambanda, facebook-síður, félagsblöð, fundi og námsskeið. Það er full ástæða til að hvetja félagsmenn okkar til að vera áfram á verði, verðbólgan er á fullri ferð og ekki útlit fyrir að neitt lát sé á. Reykjavíkurborg hefur þegar gefið tóninn með boðuðum gjaldskrárhækkunum og eins og áður er hætt við að í kjölfar kjarasamninga noti fyrirtækin launahækkanir sem skálkaskjól til verðhækkana sem enginn fótur er fyrir. Áframhaldandi gott aðhald frá neytendum er því bráðnauðsynlegt.
  1. 4/16/2024 2:46:16 PM Nýjar reiknivélar
  2. 3/22/2024 2:49:34 PM Nýir kauptaxtar SGS og SA
  3. 3/20/2024 11:48:06 AM Kjarasamningur SGS og SA samþykktur með miklum meirihluta
  4. 3/13/2024 11:10:50 AM Atkvæðagreiðsla um kjarasamning SGS og SA hefst í dag