Virðum störf hótelþerna!

Það er ekkert launungarmál að störf hótelþerna eru hótelgeiranum gríðarlega mikilvæg. Hótelþernur þurfa að axla mikla ábyrgð og álagið á þeim er oft á tíðum mjög mikið. En þrátt fyrir óumdeilt mikilvægi hótelþerna eru störf þeirra engu að síður vanmetin. Um þessar mundir standa alþjóðleg samtök launfólks í matvæla-, ferðaþjónustu og landbúnaði (IUF) og aðildarfélög þess fyrir átaki undir yfirskriftinni „Make my workplace safe“. Átakinu er m.a. ætla að vekja athygli á slæmum vinnuskilyrðum hótelþerna og um leið krefjast þess að hótel um heim allan viðurkenni og virði mikilvægi hótelþerna sem og réttindi þeirra og stéttarfélög. Starfsgreinasambandið mun taka virkan þátt í átakinu næstu vikuna með greinarskrifum og dreifingu kynningarefnis hér á vefsíðunni, á Facebook og víðar. -Bæklingur NU-HRCT vegna átaksins #fairhousekeeping #makemyworkplacesafe
  1. 4/30/2024 2:50:44 PM Fjölbreytt dagskrá um land allt á baráttudegi verkalýðsins
  2. 4/29/2024 3:05:43 PM Orlofsuppbót/ persónuuppbót 2024
  3. 4/16/2024 2:46:16 PM Nýjar reiknivélar
  4. 3/22/2024 2:49:34 PM Nýir kauptaxtar SGS og SA