Verið á verði

Nú þegar haustið nálgast sér fyrir endann á árstíðarbundnum sumarstörfum af margvíslegu tagi. Starfslokum fylgir uppgjör á launum og öðrum greiðslum, svo sem orlofi.

Mikilvægt er að fara yfir útreikninga og gæta þess að allar greiðslur séu í samræmi við kjarasamninga og ráðningarkjör. Ef einhver vafi vaknar um að greiðslur séu réttar eða eitthvað er óljóst hvetjum við alla til að hafa samband við sitt stéttarfélag og fá upplýsingar og aðstoð. Rangur launaútreikningur er allt of algengur og því nauðsynlegt fyrir launafólk að fara yfir alla launaseðla og tryggja að laun og greiðslur séu rétt reiknaðar og frágengnar. 

  1. 6/4/2025 1:11:55 PM Burt með mismunun - ný vefsíða
  2. 5/5/2025 3:54:17 PM VLFS vinnur mál í Félagsdómi vegna alvarlegra brota gegn fél…
  3. 5/2/2025 2:10:50 PM Orlofsuppbót 2025 - reiknivélar fyrir félagsmenn
  4. 4/30/2025 2:33:52 PM Fjölbreytt dagskrá á baráttudegi verkalýðsins