Atvinnuleysi 3,8% í marsmánuði

Samkvæmt Vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands voru að jafnaði 191.000 manns á aldrinum 16-74 ára á vinnumarkaði í mars 2016, sem jafngildir 81,8% atvinnuþátttöku. Af þeim voru 188.800 starfandi og 7.200 án vinnu og í atvinnuleit. Hlutfall starfandi af mannfjölda var 78,7% og hlutfall atvinnulausra af vinnuafli var 3,8%. Samanburður mælinga fyrir mars 2015 og 2016 sýnir að atvinnuþátttakan minnkaði lítillega eða um 0,2 prósentustig. Fjöldi starfandi jókst um 1.400 en hlutfallið af mannfjölda stóð hins vegar í stað. Atvinnulausum fækkaði um sem nemur 500 manns og hlutfall þeirra af vinnuaflinu lækkaði um 0,3 stig. Lesa má nánar um framkvæmd og aðferð rannsóknarinnar á vef Hagstofunnar.
  1. 12/3/2025 2:23:43 PM Starfsemi erlendra vörsluaðila
  2. 12/3/2025 11:44:05 AM Nýr stofnanasamningur undirritaður við Land og Skóg
  3. 11/28/2025 1:22:08 PM Heimsókn til Vestmannaeyja
  4. 11/27/2025 4:51:44 PM Blikur á lofti í atvinnumálum á landsbyggðinni