Lágmarkstekjur
Í kjarasamningum er kveðið á um hverjar lágmarkstekjur eru fyrir tiltekin störf. Ákvæði kjarasamninga eru lágmarkskjör og samningar um lakari kjör eru ógildir og óskuldbindandi. um kjör umfram ákvæði kjarasamninga er samið í ráðningarsamningum.
Lágmarkstekjur fyrir fullt starf, 173,33 klst. á mánuði (40 stundir á viku) fyrir 18 ára og eldri eftir 6 mánaða starf hjá sama fyrirtæki (þó að lágmarki 900 stundir):
Frá 1. apríl 2019: 317.000 kr.
Frá 1. apríl 2020: 335.000 kr.
Frá 1. janúar 2021: 351.000 kr.
Frá 1. janúar 2022: 368.000 kr.
Mánaðarlega skal greiða uppbót á laun viðkomandi starfsmanna sem ekki ná framangreindum tekjum, en til tekna í þessu sambandi teljast allar greiðslur, þ.m.t. hverskonar bónus-, álags- og aukagreiðslur, sem falla til innan ofangreinds vinnutíma.
Launauppbót vegna lágmarkstekjutryggingar skerðist ekki vegna samningsbundinnar launahækkunar vegna aukinnar menntunar sem samningsaðilar standa sameiginlega að.
Laun fyrir vinnu umfram 173,33 stundir á mánuði og endurgjald á útlögðum kostnaði reiknast ekki með í þessu sambandi.
Sjá nánar í 1. kafla í kjarasamningi SGS og Samtaka atvinnulífsins.