Starfsfólk SGS
Starfsheiti | Framkvæmdastjóri |
Netfang | bjorg@sgs.is |
Sími | 562 6410 |
GSM | 899 2331 |
Björg stýrir skrifstofu SGS og ber ábyrgð á daglegum rekstri sambandsins. Hún framkvæmir ákvarðanir þinga, formannafunda og framkvæmdastjórnar, fer með almenna prókúru og annast fjármál í samráði við formann og framkvæmdastjórn. Hún annast samskipti við fjölmiðla, erlend systursamtök og aðildarfélög sambandsins og ber jafnframt ábyrgð á undirbúningi kjaraviðræðna og útgáfu kjarasamninga og kauptaxta.
Björg er með meistaragráðu í upplýsingafræði, kennsluréttindi á grunn- og framhaldsskólastigi og viðbótardiplóma í opinberri stjórnsýslu. Áður starfaði Björg meðal annars hjá Fjölbrautaskóla Vesturlands, Verkalýðsfélagi Akraness og VIRK Starfsendurhæfingarsjóði. Þá hefur hún gegnt ýmsum félags- og trúnaðarstörfum.
Starfsheiti | Verkefnastjóri |
Netfang | arinbjorn@sgs.is |
Sími | 562 6410 |
GSM | 847 1551 |
Arinbjörn annast ráðgjöf og þjónustu við aðildarfélög SGS á sviði kjara-, vinnumarkaðs- og starfsmenntamála og sinnir margvíslegum verkefnum fyrir sambandið.
Arinbjörn hefur lokið fullnaðarprófi í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík hefur undanfarin ár starfað sjálfstætt sem lögfræðingur og sem viðskiptablaðamaður hjá Morgunblaðinu. Áður vann hann fjölbreytt verkamannastörf, lengst af sem háseti og netamaður á frystitogara. Þá hefur hann gengt ýmsum félags- og trúnaðarstörfum.
Starfsheiti | Formaður |
Netfang | vilhjalmur@vlfa.is |
Sími | 430 9902 |
GSM | 865 1294 |
Vilhjálmur Birgisson var kjörinn formaður Starfsgreinasambands Íslands á þingi sambandsins í mars 2022. Vilhjálmur hefur verið formaður Verkalýðsfélags Akraness frá árinu 2003 og hefur gegnt fjölmörgum félags- og trúnaðarstörfum fyrir félagið, sem og fyrir SGS og ASÍ.
Vilhjálmur er í hlutastarfi hjá SGS sem formaður sambandsins.