Áskorun gegn gjaldskrárhækkunum

Fyrr í dag átti SGS fund með Samtökum atvinnulífsins ásamt samfloti landssambanda og stærstu stéttarfélaga á almennum vinnumarkaði. Um var að ræða fyrsta formlega fundinn um endurnýjun kjarasamninga á almennum vinnumarkaði.

Á fundinum samþykktu samningsaðilar eftirfarandi ályktun þar sem skorað er á fyrirtæki og opinbera aðila að halda aftur af verð- og gjaldskrárhækkunum:

„Samtök atvinnulífsins og breiðfylking landssambanda og stærstu stéttarfélaga á almenna vinnumarkaðinum hafa tekið höndum saman um gerð langtímakjarasamninga sem auka fyrirsjáanleika og stöðugleika í efnahagslífinu.

Samningsaðilar eru sammála um að eitt mikilvægasta verkefnið í komandi kjaraviðræðum sé að ná niður mikilli verðbólgu og háu vaxtastigi sem komið hefur hart niður ábæði heimilum og fyrirtækjum.    

Til að það markmið náist verða allir aðilar vinnumarkaðarins, fyrirtæki landsins, ríki og sveitarfélög að leggjast á eitt og getur enginn skorast undan ábyrgð.  

Samningsaðilar skora á fyrirtæki landsins, ríki og sveitarfélög styðja við markmið kjarasamninganna um að ná niður verðbólgu og þar með vöxtum, með því að halda aftur af gjaldskrár- og verðhækkunum og launaskriði.”

  1. 7/15/2024 10:47:20 AM Kjarasamningur við Samband íslenskra sveitarfélaga 2024-2028…
  2. 7/8/2024 11:05:45 AM Kjarasamningur við ríkið 2024-2028 samþykktur
  3. 7/5/2024 11:51:04 AM Kosið um nýjan kjarasamning við sveitarfélögin
  4. 7/4/2024 12:49:29 PM Kjarasamningur við sveitarfélögin í höfn