Orlofsuppbót 2025 - reiknivélar fyrir félagsmenn

Starfsgreinasambandið vill minna félagsmenn á rétt sinn á að fá greidda orlofsuppbót (persónuuppbót), en það er föst fjárhæð sem atvinnurekendum er skylt að greiða starfsfólki sínu í maí/júní ár hvert. Uppbótin miðast við starfshlutfall og starfstíma á orlofsárinu, inniheldur orlof og tekur ekki breytingum skv. öðrum ákvæðum kjarasamninga. Þá á að gera upp áunna orlofsuppbót samhliða starfslokum, verði þau fyrir gjalddaga uppbótarinnar. Í reiknivélum SGS geta félagsmenn reiknað út sína orlofsuppbót út frá starfshlutfalli og starfstíma.

Almennur vinnumarkaður
Orlofsuppbót er 60.000 kr. miðað við fullt starf og greiðist 1. júní. Reiknivél.

Ríki
Orlofsuppbót er 60.000 kr. miðað við fullt starf og greiðist 1. júní. Reiknivél.

Sveitarfélög
Persónuuppbót er 59.500 kr. miðað við fullt starf og greiðist 1. maí. Reiknivél.

  1. 12/3/2025 2:23:43 PM Starfsemi erlendra vörsluaðila
  2. 12/3/2025 11:44:05 AM Nýr stofnanasamningur undirritaður við Land og Skóg
  3. 11/28/2025 1:22:08 PM Heimsókn til Vestmannaeyja
  4. 11/27/2025 4:51:44 PM Blikur á lofti í atvinnumálum á landsbyggðinni