Desemberuppbót 2022

Samkvæmt kjarasamningum ber atvinnurekendum að greiða starfsfólki sínu desemberuppbót í byrjun desember ár hvert. Uppbótin er háð ákveðnum skilyrðum sem varða t.a.m. starfstíma og starfshlutfall á yfirstandandi ári. Desemberuppbót skal greiða í einu lagi og ofan á hana reiknast ekki orlof. Um er að ræða fasta krónutölu sem tekur ekki hækkunum skv. öðrum ákvæðum kjarasamninga. Áunnar uppbætur skal gera upp samhliða starfslokum.

Almennur vinnumarkaður
Desemberuppbót er 98.000 kr. miðað við fullt starf og greiðist eigi síðar en 15. desember.

Ríki
Desemberuppbót er 98.000 kr. miðað við fullt starf og greiðist 1. desember.

Sveitarfélög
Desemberuppbót (persónuuppbót) er 124.750 kr. miðað við fullt starf og greiðist 1. desember.

Sjá nánar í kjarasamningum viðkomandi aðila.

  1. 4/16/2024 2:46:16 PM Nýjar reiknivélar
  2. 3/22/2024 2:49:34 PM Nýir kauptaxtar SGS og SA
  3. 3/20/2024 11:48:06 AM Kjarasamningur SGS og SA samþykktur með miklum meirihluta
  4. 3/13/2024 11:10:50 AM Atkvæðagreiðsla um kjarasamning SGS og SA hefst í dag