Ertu að vinna við ræstingar?

Greiðslur og vinnufyrirkomulag í ræstingum getur verið með mismunandi hætti og er því mjög mikilvægt að félagsmenn séu vel upplýstir hvort verið sé að greiða rétt laun í samræmi við vinnuframlagið.  Algengasta fyrirkomulagið hefur verið tímamæld ákvæðisvinna í ræstingum þar sem ræstingastykkin eru mæld og ávinningur starfsmanna felst í því að fá hærra greitt fyrir að ljúka stykkinu af á skemmri tíma. Einnig er hægt að greiða eftir hefðbundnu tímavinnufyrirkomulagi og reiknast þá 80% yfirvinnuálag fyrir vinnu eftir kl. 17.00 virka daga.  Þá er möguleiki að vinna samkvæmt vaktavinnufyrirkomulagi en þá er skilyrði að getið sé um slíkt í ráðningarsamningi með ákveðnu vinnufyrirkomulagi og starfshlutfalli. Hér að neðan má sjá frekari útlistun á viðkomandi launafyrirkomulagi (á við ræstingarstörf á almennum vinnumarkaði).
[hr toTop="false" /]

Tímamæld ákvæðisvinna

Þegar um tímamælda ákvæðisvinnu í ræstingu er að ræða gerir vinnufyrirkomulagið ráð fyrir meiri vinnuhraða en í hefðbundnu fyrirkomulagi og er því greitt hærra tímakaup.  Hér er mjög mikilvægt að skrifleg verklýsing liggi fyrir sem afmarkar skýrt það sem þrífa á og með hvaða áherslum. Tekið skal fram á hvaða tíma dags svæðið skal ræst og hve oft.  Ákvæðisvinnuálag fyrir tímamælda ákvæðisvinnu er 20%, þar af er 8% álag fyrir neysluhlé.  Neysluhlé er því ekki tekið á vinnutíma þar sem greitt er sérstaklega fyrir það í hærri taxta.
Launaflokkur 3 með 20% álagi frá 1. maí 2017 – 30. apríl 2018
mán – fös 17.00-24.00 mán – fös 24.00 – 08.00 og lau./sun.
Dagvinna með 33% álagi* með 45% álagi* Yfirvinna*
Byrjunarlaun, 20 ára 1.780,86 2.368,54 2.582,24 3.205,60
1 ár, í starfsgrein 1.792,87 2.384,52 2.599,67 3.227,23
3 ár, í starfsgrein 1.805,07 2.400,74 2.617,35 3.249,19
5 ár, í starfsgrein 1.817,45 2.417,21 2.635,30 3.271,47
*Fyrir vinnu umfram 40 stundir á viku skal greiða yfirvinnuálag Tímakaup fyrir hreingerningar eða sérverkefni greiðist með 45% álagi nema vinna fari yfir 40 stundir á viku, þá greiðist yfirvinnuálag.
[hr toTop="false" /]

Tímavinna

Vinnufyrirkomulag tímavinnu miðast við hefðbundinn vinnuhraða þar sem starfsmenn eiga rétt á 35 mínútna neysluhléi á launum fyrir fullt starf á dagvinnutíma.  Vinnustundir eru því alla jafna fleiri en í tímamældri ákvæðisvinnu. Eftir kl. 17.00 reiknast 80% yfirvinnuálag á tímavinnu.
Launaflokkur 3 frá 1. maí 2017 – 30. apríl 2018
Dagvinna Yfirvinna
Byrjunarlaun, 18 ára 1.484,05 2.671,33
1 ár, í starfsgrein 1.494,06 2.689,36
3 ár, í starfsgrein 1.504,23 2.707,66
5 ár, í starfsgrein 1.514,54 2.726,22
[hr toTop="false" /]

Vaktavinna

Nauðsynlegt er að tilgreint sé í ráðningasamningi ef um vaktavinnufyrirkomulag er að ræða og þarf þá starfshlutfall að vera fast skilgreint.  Fyrir vinnu umfram starfshlutfall í ráðningasamningi greiðist tímakaup, dagvinna á dagvinnutímabili og yfirvinna á yfirvinnutímabili.  Vinnufyrirkomulag í vaktavinnu miðast við hefðbundinn vinnuhraða eins og í tímavinnufyrirkomulagi og er neysluhlé 5 mínútur fyrir hvern unninn klukkutíma sem gerir 40 mínútur fyrir fullt starf á dag. Starfsmenn í vaktavinnu ávinna sér 12 vetrarfrísdaga fyrir vinnu á helgidögum.  Miðað er við að frídagarnir séu teknir á tímabilinu 1. október – 1. maí en einnig er hægt að semja um greiðslur í stað frídaga, 8 klst. í dagvinnu fyrir hvern frídag miðað við fullt starf. Algengast hefur verið að vaktavinna í ræstingum sé unnin á opinberum stofnunum eins og á sjúkrahúsum.
Launaflokkur 6 frá 1. maí 2017 – 30. apríl 2018
mán – fös 17.00-24.00 mán – fös 24.00 – 08.00 og lau./sun.
Dagvinna Yfirvinna með 33% álagi með 55% álagi* 90% álag
Byrjunarlaun, 18 ára 1.514,54 2.726,22 2.014,34 2.347,54 2.877,63
1 ár, í starfsgrein 1.525,01 2.745,07 2.028,27 2.363,77 2.897,53
3 ár, í starfsgrein 1.535,64 2.764,21 2.042,41 2.380,25 2.917,72
5 ár, í starfsgrein 1.546,43 2.783,62 2.056,75 2.396,96 2.938,21
*45% álag hjá öðrum en opinberum stofnunum.
  1. 4/16/2024 2:46:16 PM Nýjar reiknivélar
  2. 3/22/2024 2:49:34 PM Nýir kauptaxtar SGS og SA
  3. 3/20/2024 11:48:06 AM Kjarasamningur SGS og SA samþykktur með miklum meirihluta
  4. 3/13/2024 11:10:50 AM Atkvæðagreiðsla um kjarasamning SGS og SA hefst í dag