Framkvæmdastjórn SGS lýsir yfir þungum áhyggjum af vaxandi verðbólgu

Framkvæmdastjórn SGS lýsir yfir þungum áhyggjum af vaxandi verðbólgu sem bitnar hvað harðast á láglaunafólki. Útlit er fyrir að húsnæðisverð og hækkun hrávöruverðs muni hafa áframhaldandi áhrif á hækkandi verðlag. Að mati Starfsgreinasambandsins hafa stjórnvöld misst tökin á húsnæðismarkaðinum sem meðal annars hefur orðið til þess að verðbólga fer áfram vaxandi og mælist nú 7,2%. Húsaleiga og húsnæðiskuldir heimilanna í landinu hafa hækkað gríðarlega sem og matarverð.

Afar mikilvægt er að stjórnvöld bregðist við með hagsmuni launafólks í huga. Framkvæmdastjórn Starfsgreinasambandsins skorar á stjórnvöld að beita sér fyrir því að afleiðingar af breyttum ytri aðstæðum bitni ekki harðast á láglaunafólki í landinu og kjörum þess.

  1. 6/4/2025 1:11:55 PM Burt með mismunun - ný vefsíða
  2. 5/5/2025 3:54:17 PM VLFS vinnur mál í Félagsdómi vegna alvarlegra brota gegn fél…
  3. 5/2/2025 2:10:50 PM Orlofsuppbót 2025 - reiknivélar fyrir félagsmenn
  4. 4/30/2025 2:33:52 PM Fjölbreytt dagskrá á baráttudegi verkalýðsins