Fundarhöld á Bifröst framundan

Í vikunni mun Starfsgreinasambandið standa fyrir tveimur fundum á Hótel Bifröst í Borgarfirði, annars vegar fundi fyrir ungliða og hins vegar formannafundi. Dagana 30. og 31. maí munu um 25 ungliðar koma saman til að fræðast um málefni verkalýðshreyfingarinnar, framtíð vinnumarkaðarins o.fl. Um er að ungt fólk á aldrinum 18 til 33 ára sem öll eiga það sameiginlegt að vera félagsmenn aðildarfélaga SGS og að hafa áhuga á að taka virkan þátt í starfi sinna stéttarfélaga sem og starfsemi verkalýðshreyfingarinnar. Dagana 31. maí og 1. júní heldur SGS svo útvíkkaðan formannafund, en til fundarins eru boðaðir formenn aðildarfélaga sambandsins auk eins fulltrúa til viðbótar frá hverju félagi. Fundurinn hefst á hádegisverði formanna og áðurnefndra ungliða, en í framhaldinu munu fulltrúar ungliðanna gera grein fyrir fundarstörfum sínum dagana á undan ásamt því að ræða eflingu ungs fólks innan hreyfingarinnar. Fjölmörg önnur mál eru á dagskrá fundarins, en dagskrána í heild sinni má sjá hér að neðan. 31. maí 2018 12:30    Sameiginlegur hádegisverður með ungliðum 13:30     Ungliðar kynna niðurstöðu ungliðafundarins 14:00    Stefán Ólafsson prófessor kynnir niðurstöður rannsókna sinna á ójöfnuði á Íslandi 15:30     Ársreikningar SGS 2017 kynntir, farið yfir erlend samskipti Starfsgreinasambandsins o.fl. 16:30     Fundi frestað 1. júní 2018 09:00     Skipulag hvers félags í aðdraganda kjarasamninga 10:30     Í lagi – vottun fyrirtækja 11:00     Eftirlit stéttarfélaga og barátta gegn félagslegum undirboðum í sumar 12:00     Önnur mál 12:30     Fundarslit og hádegisverður
  1. 4/16/2024 2:46:16 PM Nýjar reiknivélar
  2. 3/22/2024 2:49:34 PM Nýir kauptaxtar SGS og SA
  3. 3/20/2024 11:48:06 AM Kjarasamningur SGS og SA samþykktur með miklum meirihluta
  4. 3/13/2024 11:10:50 AM Atkvæðagreiðsla um kjarasamning SGS og SA hefst í dag