Kjarasamningur SGS og SA samþykktur með miklum meirihluta

Niðurstöður atkvæðagreiðslu um nýjan kjarasamning 18 aðildarfélaga Starfsgreinasambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins liggja nú fyrir og var samningurinn samþykktur með 82,72% atkvæða. Nei sögðu 12,85% og 4,43% tóku ekki afstöðu. Á kjörskrá voru samtals 23.677 félagsmenn hjá öllum 18 aðildarfélögum SGS. Atkvæði greiddu 4.156 manns eða 17.55%. Atkvæðagreiðsla um samninginn stóð yfir dagana 13. til 20. mars.

Telst kjarasamningurinn, sem undirritaður var 7. mars síðastliðinn, því samþykktur hjá eftirtöldum félögum:
AFLi Starfsgreinafélagi, Öldunni stéttarfélagi, Bárunni stéttarfélagi, Drífanda stéttarfélagi, Einingu-Iðju, Framsýn stéttarfélagi, Stéttarfélagi Vesturlands, Stéttarfélaginu Samstöðu, Verkalýðsfélagi Akraness, Verkalýðsfélagi Grindavíkur, Verkalýðs- og sjómannafélagi Bolungarvíkur, Verkalýðs- og sjómannafélagi Sandgerðis, Verkalýðsfélagi Snæfellinga, Verkalýðsfélagi Suðurlands, Verkalýðsfélagi Vestfirðinga, Verkalýðsfélagi Þórshafnar, Verkalýðs- og sjómannafélagi Keflavíkur og nágrennis og Verkalýðsfélaginu Hlíf.

Niðurstöður atkvæðagreiðslu (PDF)

  1. 7/15/2024 10:47:20 AM Kjarasamningur við Samband íslenskra sveitarfélaga 2024-2028…
  2. 7/8/2024 11:05:45 AM Kjarasamningur við ríkið 2024-2028 samþykktur
  3. 7/5/2024 11:51:04 AM Kosið um nýjan kjarasamning við sveitarfélögin
  4. 7/4/2024 12:49:29 PM Kjarasamningur við sveitarfélögin í höfn