Kjarasamningur við Landsvirkjun samþykktur

Atkvæðagreiðslu er lokið um nýjan kjarasamning Starfsgreinasambands Íslands og Landsvirkjunar sem undirritaður var 25. júní síðastliðinn. Samningurinn nær til félagsmanna innan aðildarfélaga SGS sem starfa hjá Landsvirkjun vítt og breitt um landið og vinna við rekstur, viðhald og aðra þjónustu í dreifikerfum og aflstöðvum sem eru í rekstri.

Á kjörskrá voru 16 manns. Atkvæði greiddu 9, eða 56,25%, og var samningurinn samþykktur með öllum greiddum atkvæðum. Nýjan samning má nálgast hér.

  1. 5/5/2025 3:54:17 PM VLFS vinnur mál í Félagsdómi vegna alvarlegra brota gegn fél…
  2. 5/2/2025 2:10:50 PM Orlofsuppbót 2025 - reiknivélar fyrir félagsmenn
  3. 4/30/2025 2:33:52 PM Fjölbreytt dagskrá á baráttudegi verkalýðsins
  4. 4/8/2025 2:42:20 PM Kjarasamningsbundnar launahækkanir í apríl