Konur taka af skarið á Akureyri

Það var líf og fjör sl. laugardag í sal Einingar-iðju þar sem konur á Norðurlandi hittust til skrafs og ráðagerða. Tilefnið var námskeiðið „Konur taka af skarið!“ sem AkureyrarAkademían, Jafnréttisstofa, Starfsgreinasambandið og JCI Sproti standa fyrir. Verkefnið fékk styrk úr Jafnréttissjóði Íslands og er markmið þess að hvetja konur til þátttöku og áhrifa innan verkalýðshreyfingarinnar. Viðamikil dagskrá var á námskeiðinu sem er hugsað sem samræðuvettvangur þar sem innlegg um ákveðin málefni koma frá fyrirlesurum en þátttakendur miðla af sinni viðamiklu reynslu og þekkingu ekki síður en fyrirlesararnir. Dagskráin hófst á því að Katrín Björg Ríkarðsdóttir, framkvæmdastjóri Jafnréttisstofu, hélt erindi um kynjakerfið undir yfirskriftinni „Að bjóða kynjakerfinu birginn“. Næst fjallaði Drífa Snædal, forseti ASÍ, um stöðu verkalýðsbaráttunnar í dag og lýsti uppbyggingu verkalýðsfélaganna. Viktor Ómarsson, hjá JCI Sprota, sá um leiðtogaþjálfun og fjallaðu um hvernig er hægt að hafa áhrif og koma sínu á framfæri. Viktor fékk þátttakendur í margskonar æfingar og verkefni sem reyndu á. Síðasti hluti námskeiðsins var í höndum Drífu Snædal sem ræddi við þátttakendur um sína reynslu af því að vera kona og starfa innan verkalýðshreyfingarinnar. Bergljót Þrastardóttir, stjórnarformaður AkureyrarAkademíunnar var fundarstjóri. Námskeiðið á laugardag er fyrsta námskeiðið af sex en samskonar námskeið verða haldin á Egilsstöðum, Selfossi, Reykjavík, Ísafirði og Borgarnesi í febrúar og mars. Námskeiðin verða nánar auglýst síðar, en þau eru opin öllum konum sem eru félagar í Starfsgreinasambandi Íslands eða í starfsmannafélögum sveitarfélaganna, þeim að kostnaðarlausu. [gallery ids="271743,271745,271744"]
  1. 4/16/2024 2:46:16 PM Nýjar reiknivélar
  2. 3/22/2024 2:49:34 PM Nýir kauptaxtar SGS og SA
  3. 3/20/2024 11:48:06 AM Kjarasamningur SGS og SA samþykktur með miklum meirihluta
  4. 3/13/2024 11:10:50 AM Atkvæðagreiðsla um kjarasamning SGS og SA hefst í dag